Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 325/2008

Nr. 325/2008 2. apríl 2008
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi miðhverfis Helgafellshverfis, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 12. mars 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á deiliskipulagi miðhverfis Helgafells­hverfis („Augans“). Skipulagsbreytingin felst í því að settur er inn byggingarreitur fyrir lausar kennslustofur syðst á lóð grunnskóla í miðju hverfisins og bráðabirgðaaðkoma að þeim frá þvergötu meðfram austurmörkum skólalóðarinnar.
Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 2. apríl 2008,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 4. apríl 2008