Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 508/2015

Nr. 508/2015 5. júní 2015

AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi Dalsbús, Mosfellsbæ.

Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar hefur þann 4. júní 2015 skv. heimild í viðauka I við samþykkt nr. 596/2011 um breytingu á samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalsbús í Helgadal, sem hlotið hefur meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 7. maí 2015 með athugasemdafresti til 5. júní 2015. Engin athugasemd barst en allir þátttakendur lýstu sig samþykka breytingunni með áritun á uppdrátt.
Breytingin er sú að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og tengdar byggingar stækkar.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 5. júní 2015,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2015