Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1051/2014

Nr. 1051/2014 4. desember 2014
AUGLÝSING
(VI) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlut­unar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Fjallabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta Siglufjarðar og Ólafsfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skulu öll skip og bátar sem uppfylla ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar eiga rétt á 2.500 þorsk­ígildis­kílóa úthlutun óháð afla þeirra á fiskveiðiárinu 2013/2014. Auk þess skal því aflamarki sem eftir stendur skipt hlutfallslega milli sömu skipa og báta miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014, þó ekki hærra en 20% af því sem eftir stendur, en að hámarki 60 þorsk­ígildis­tonn.

 

b)

Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

 

c)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015. Aflinn skal nema í þorskígildum talið jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari, auk jafnmikils magns til vinnslu eða á fiskmarkað í sveitarfélaginu.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. desember 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 4. desember 2014