Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 346/2009

Nr. 346/2009 2. apríl 2009

AUGLÝSING
um mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl 2009.

Landskjörstjórn gerir kunnugt:

að með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, sbr. og 5.-6. tölul. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, skuli mörk Reykjavíkur­kjördæma suður og norður fyrir alþingiskosningar 25. apríl 2009 vera eftir­farandi:

Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi, en frá Vesturlandsvegi á móts við Sóltorg (ISN93 hnit: 364886, 405744) skal dregin bein lína í miðpunkt Sóltorgs og þaðan skulu mörkin dregin eftir miðlínu Kristnibrautar, Gvendargeisla og Biskupsgötu að Reynisvatnsvegi. Frá gatna­mótum Biskupsgötu og Reynisvatnsvegar skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93 hnit: 369110, 405535).

Meðfylgjandi eru tveir uppdrættir, merktir fylgiskjal I og fylgiskjal II, sem sýna mörk milli Reykjavíkurkjördæma með blárri línu.

Þá hefur landskjörstjórn ákveðið með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, að þeim sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík skv. b-lið 1. mgr. 23. gr. sömu laga skuli skipt milli Reykjavíkurkjördæma suður og norður þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður komi allir þeir sem eru fæddir 1.-15. dag mánaðar en í Reykjavíkurkjördæmi norður komi allir þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar. Sama regla gildir um þá sem skráðir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.

Reykjavík, 2. apríl 2009.

Landskjörstjórn,

Bryndís Hlöðversdóttir

varaformaður.

Hervör Þorvaldsdóttir.
Þórður Bogason.

 

Hrafnhildur Stefánsdóttir.
Sólveig Guðmundsdóttir.

 

Ásmundur Helgason.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 3. apríl 2009