Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur umhverfisráðherra þann 25. maí 2012 staðfest aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun gert tillögu til ráðherra um staðfestingu. Aðalskipulagið öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi aðalskipulag Grindavíkur 2000-2020 frá 17. desember 2002, ásamt áorðnum breytingum. Umhverfisráðuneytinu, 25. maí 2012. Magnús Jóhannesson. Íris Bjargmundsdóttir. |