Samkvæmt 4. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. c-lið 6. tl. 56. gr. laga nr. 160/2010, hefur Skipulagsstofnun þann 25. mars 2011 fallist á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 frá 20. desember 2002. Breytingin felst í að gert er ráð fyrir byggðarreit fyrir blandaða byggð 6,5 ha að stærð í landi Sólvalla í Mosfellsbæ á svæði sem samkvæmt núgildandi svæðisskipulagi átti að koma til framkvæmda eftir 2024. Ennfremur er töflu 3.2 Um breytingar á stærð atvinnuhúsnæðis á byggðarsvæðum í m² 1998-2024 breytt þannig að heimilt byggingarmagn sérhæfðra bygginga eykst um 32.000 m² á skipulagstímabilinu. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var málsmeðferð breytingartillögunnar í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997. Þar sem breytingin barst Skipulagsstofnun skv. 14. gr. framangreindra laga eftir 1. janúar 2011, staðfestir Skipulagsstofnun hana samkvæmt lögum nr. 123/2010. Skipulagsstofnun, 25. mars 2011. Stefán Thors. Erna Hrönn Geirsdóttir. |