Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1107/2006

Nr. 1107/2006 20. desember 2006
REGLUGERÐ
um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

1. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, skal vera 312.000 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr. laganna skal vera 499.100 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, öðlast gildi 1. janúar 2007. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1181/2005, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

Félagsmálaráðuneytinu, 20. desember 2006.

Magnús Stefánsson.

Sesselja Árnadóttir.

B deild - Útgáfud.: 29. desember 2006