1. gr. 7. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Skipstjórnarnám A. Sá sem lokið hefur skipstjórnarnámi A hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem: - Skipstjóri á skipum styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum, eftir 12 mánaða siglingatíma (Smáskipaskírteini).
- Undirstýrimaður á skipum styttri en 45 metrar að skráningarlengd í innanlandssiglingum eftir 18 mánaða siglingatíma (Skírteini: Ab.).
- Stýrimaður á skipum styttri en 24 metrar að skráningarlengd í innanlandssiglingum eftir 18 mánaða siglingatíma (Skírteini: Ac.).
- Skipstjóri á skipum styttri en 24 metrar að skráningarlengd í innanlandssiglingum eftir 12 mánaða siglingatíma sem stýrimaður eða a.m.k. 12 mánaða siglingatíma sem skipstjóri á skipum styttri en 12 metrar að skráningarlengd (Skírteini: Ad.).
2. gr. 1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Skipstjórnarnám B. Sá sem lokið hefur skipstjórnarnámi B hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem: - Yfirstýrimaður/stýrimaður á skipum styttri en 45 metrar að skráningarlengd í innanlandssiglingum eftir 18 mánaða siglingatíma (Skírteini: Ba.).
- Skipstjóri á skipum styttri en 45 metrar að skráningarlengd í innanlandssiglingum eftir 12 mánaða siglingatíma sem stýrimaður á skipum styttri en 45 metrar eða 12 mánaða siglingatíma sem skipstjóri á skipum styttri en 24 metrar að skráningarlengd (Skírteini: Bc.).
- Undirstýrimaður á fiskiskipum og öðrum skipum að ótakmarkaðri stærð og farsviði eftir 18 mánaða siglingatíma (Skírteini: Bb.).
3. gr. 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Skipstjórnarnám C. Sá sem lokið hefur skipstjórnarnámi C hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem: - Yfirstýrimaður á fiskiskipum og öðrum skipum að ótakmarkaðri stærð og farsviði og undirstýrimaður á varðskipum eftir 12 mánaða siglingatíma sem stýrimaður eða skipstjóri á skipum 24 metrar og lengri að skráningarlengd (Skírteini: Ca.).
- Skipstjóri á skipum að ótakmarkaðri stærð og farsviði eftir 12 mánaða siglingatíma sem yfirstýrimaður á skipum lengri en 45 metrar að skráningarlengd eða 12 mánuði sem skipstjóri á skipum lengri en 24 metrar að skráningarlengd (Skírteini: Cb.).
4. gr. 12. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Vélgæslunám. Sá sem lokið hefur vélgæslunámi samkvæmt reglugerð settri af menntamálaráðuneyti, hefur öðlast rétt til að vera vélavörður á skipum 12 metrar og styttri að skráningarlengd með vélarafl 750 kW eða minna (Skírteini: Smáskipa vélavörður (SSV)). Að loknu viðbótarnámi sem skilgreint er í námskrá öðlast hann rétt til að vera vélavörður á skipi með 750 kW vél og minni (Skírteini: Vélavörður (VV)) og yfirvélstjóri á skipi með 750 kW vél og minni og 24 metrar og styttri að skráningarlengd að loknum 4ra mánaða siglingatíma sem vélavörður (Skírteini: Vélavörður (VVY)). 5. gr. d-liður 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar orðist svo: - Yfirvélstjóri á skipi með 1500 kW vélarafl og minna og undirvélstjóri ótakmarkað að loknum 18 mánaða siglingatíma sem vélstjóri eða vélavörður á skipi, þar af 9 mánuði sem vélstjóri (Skírteini: Vélstjóri I (VS.I)).
6. gr. 1. og 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Vélstjórnarnám C. Sá sem lokið hefur vélstjórnarnámi C hefur að öðrum skilyrðum uppfylltum öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem: - Vélavörður (Skírteini: Vélavörður (VV)).
- Undirvélstjóri á skipi með minna en 3000 kW vélarafl og 1. vélstjóri á skipi með 1500 kW vélarafl og minna að loknum 1 mánaðar siglingatíma (Skírteini: Vélstjóri II (VS.II)).
- Yfirvélstjóri á skipi með 750 kW vélarafl og minna að loknum 3 mánaða siglingatíma sem vélavörður eða vélstjóri (Skírteini: Vélstjóri (VS.III)).
- Yfirvélstjóri á skipi með 1500 kW vélarafl og minna og undirvélstjóri ótakmarkað að loknum 9 mánaða siglingatíma sem vélstjóri (Skírteini: Vélstjóri I (VS.I)).
- 1. vélstjóri á skipi með minna en 3000 kW vélarafl að loknum 12 mánaða siglingatíma sem vélstjóri (Skírteini: VF.IV).
- Yfirvélstjóri á skipi með minna en 3000 kW vélarafl að loknum 12 mánaða siglingatíma sem vélstjóri, eftir að hafa öðlast rétt til að vera 1. vélstjóri á skipi með minna en 3000 kW vélarafl (Skírteini: VF.III).
Til þess að fá útgefið atvinnuskírteini skv. e- og f-lið, skulu viðkomandi jafnframt hafa lokið: - viðurkenndri verkstæðisþjálfun í landi eða um borð í skipi og tíminn skráður í þjálfunarbók, eða
- sveinsprófi í viðurkenndri málmiðnaðargrein.
7. gr. 1. og 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Vélstjórnarnám D. Sá sem lokið hefur vélstjórnarnámi D – vélfræðingur, hefur að öðrum skilyrðum uppfylltum öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem: - Yfirvélstjóri á skipi með 750 kW vélarafl og minna að loknum 1 mánaðar siglingatíma (Skírteini: Vélstjóri (VS.III)).
- Undirvélstjóri á skipi með minna en 3000 kW vélarafl og 1. vélstjóri á skipi með 1500 kW vélarafl og minna að loknum 1 mánaðar siglingatíma (Skírteini: Vélstjóri II (VS.II)).
- Yfirvélstjóri á skipi með 1500 kW vélarafl og minna og undirvélstjóri ótakmarkað að loknum 9 mánaða siglingatíma sem vélstjóri (Skírteini: Vélstjóri I (VS.I)).
- 1. vélstjóri á skipi með ótakmarkað vélarafl og yfirvélstjóri á skipi með minna en 3000 kW vélarafl, að loknum 12 mánaða siglingatíma sem vélstjóri (Skírteini: (VF.II)).
- Yfirvélstjóri á skipi með ótakmarkað vélarafl, að loknum 24 mánaða siglingatíma sem vélstjóri, eftir að hafa öðlast rétt til að vera 1. vélstjóri á skipi með ótakmarkað vélarafl (Skírteini: (VF.I)).
Til þess að fá útgefið atvinnuskírteini skv. d- og e-lið skulu viðkomandi jafnframt hafa lokið: - viðurkenndri verkstæðisþjálfun í landi eða um borð í skipi og tíminn skráður í þjálfunarbók, eða
- sveinsprófi í viðurkenndri málmiðnaðargrein.
8. gr. 2. - 6. mgr. II. viðauka orðist svo: Heimilt er að gefa út ný skírteini til skipstjórnarstarfa á íslenskum fiskiskipum og öðrum skipum skv. lögum nr. 30/2007 og þessari reglugerð í stað skírteina skv. lögum sem fallið hafa á brott á þann hátt sem eftirfarandi tafla sýnir: Skírteini | Takmarkanir | Eldra skírteini | Skipstjóri (CB) | engar | A.6 – 2. stig | Yfirstýrimaður (CA) | fiskiskip og önnur skip | A.5 – 2. stig | Undirstýrimaður (BB) | engar | A.4 (500 brl.) – 1. stig | Skipstjóri (BC) | <45 m í innanlandssiglingum | A.4 (200 brl.) – 1. stig | Yfirstýrimaður/stýrimaður (BA) | <45 m í innanlandssiglingum | A.3 (200 brl.) – 1. stig | Undirstýrimaður (AB) | <45 m í innanlandssiglingum | A.3 (200 brl.) – 1. stig | Skipstjóri (AD) | <24 m í innanlandssiglingum | A.2 (80 brl.) | Stýrimaður (AC) | <24 m í innanlandssiglingum | A.2 (80 brl.) | Skipstjóri (SS) | <12 m í strandsiglingum | A.1 (30 brl.) |
Um lágmarksfjölda skipstjórnarmanna á fiskiskipum og öðrum skipum gilda eftirfarandi reglur: Lengd skips - skráningarlengd | Skipstjórn | <12 metrar | Skipstjóri (SS), sem má vera hinn sami og vélavörður (SSV) sé hann eini réttindamaðurinn í áhöfn og hafi atvinnuskírteini til að gegna þeim störfum. | 12 - 24 metrar | Skipstjóri (AD) og stýrimaður (AC). Heimilt er að vera án stýrimanns að fenginni heimild mönnunarnefndar ef útivistartími er styttri en 14 klst. | 24 - 45 metrar | Skipstjóri (BC) og stýrimaður (BA) | >45 metrar | Skipstjóri (CB), yfirstýrimaður (CA) og undirstýrimaður (BB) |
Heimilt er að gefa út ný skírteini til skipstjórnarstarfa á varðskipum skv. lögum nr. 30/2007 og þessari reglugerð í stað skírteina skv. lögum sem fallið hafa á brott á þann hátt sem eftirfarandi tafla sýnir: Skírteini | Takmarkanir | Eldra skírteini | Skipherra (EA) | engar | B.5 – 4. stig | Yfirstýrimaður (DA) | engar | B.2 – 3. stig | Undirstýrimaður (CA) | engar | A.5 – 2. stig |
Um lágmarksfjölda skipstjórnarmanna á varðskipum gilda eftirfarandi reglur: Lengd skips | Skipstjórn | <24 metrar | Skipherra (EA) og stýrimaður (DA) | 24 - 45 metrar | Skipherra (EA), yfirstýrimaður (DA) og undirstýrimaður (CA) | >45 metrar | Skipstjóri (EA), yfirstýrimaður (DA) og tveir undirstýrimenn (CA) |
Eftirfarandi skírteini til vélstjórnar skulu gefin út að uppfylltum skilyrðum um menntun og þjálfun, siglingatíma, aldur og heilbrigði, sjón og heyrn skv. I. viðauka: Vélgæslunám (smáskip) Skírteini | Siglingatími | Eldra skírteini | Smáskipa vélavörður 750 kW og minna og 12 m og styttri (SSV) | Enginn | VM – vélgæslunámskeið | Vélavörður 750 kW og minna (VV) | Enginn | VV og VVY – 1. stig | Yfirvélstjóri 750 kW og minna og að 24 metrum (VVY) | 4 mánuðir sem vélavörður | VVY – 1. stig |
Vélstjórnarnám A (750 kW ) Skírteini | Siglingatími | Eldra skírteini | 1. Vélavörður 750 kW og minna (VV) | Enginn | VV og VVY – 1. stig | 2. Yfirvélstjóri 750 kW og minna (VS.III) | 9 mánuðir sem vélavörður | VS.III – 2. stig VVY – 1. stig að undangengnu viðbótarnámi |
Vélstjórnarnám B (1500 kW) Skírteini | Siglingatími | Eldra skírteini | 1. Vélavörður 750 kW og minna (VV) | Enginn | | 2. Yfirvélstjóri 750 kW og minna (VS.III) | 8 mánuðir sem vélavörður | | 3. 1. vélstjóri 1500 kW og minna og undirvélstjóri 3000 kW og minna (VS.II) | 12 mánuðir sem vélavörður eða vélstjóri á skipi, þar af a.m.k. 3 mánuðir sem vélstjóri | VS.II – 3. stig | 4. Yfirvélstjóri 1500 kW og minna og undirvélstjóri ótakmarkað (VS.I) | 18 mánuðir sem vélstjóri eða vélavörður á skipi, þar af 9 mánuðir sem vélstjóri | VS.I – 3. stig |
Vélstjórnarnám C (3000 kW) Skírteini | Annað | Siglingatími | Eldra skírteini | 1. Vélavörður 750 kW og minna (VV) | | Enginn | | 2. Yfirvélstjóri 750 kW og minna (VS.III) | | 3 mánuðir sem vélavörður eða vélstjóri | | 3. 1. vélstjóri 1500 kW og minna og undirvélstjóri 3000 kW og minna (VS.II) | | 1 mánuður | | 4. Yfirvélstjóri 1500 kW og minna og undirvélstjóri ótakmarkað (VS.I) | | 9 mánuðir sem vélstjóri | | 5. 1. vélstjóri minna en 3000 kW (VF.IV) | Sveinspróf eða viðurkennd verkstæðisþjálfun í landi eða um borð | 12 mánuðir sem vélstjóri | | 6. Yfirvélstjóri minna en 3000 kW (VF.III) | Sveinspróf eða viðurkennd verkstæðisþjálfun í landi eða um borð | 12 mánuðir sem vélstjóri eftir að hafa öðlast réttindi sem 1. vélstjóri | VF.II – 4. stig |
Vélstjórnarnám D (ótakmarkað) Skírteini | Annað | Siglingatími | Eldra skírteini | 1. Vélavörður 750 kW og minna (VV) | | Enginn | | 2. Yfirvélstjóri 750 kW og minna (VS.III) | | 1 mánuður | | 3. 1. vélstjóri 1500 kW og minna og undirvélstjóri minna en 3000 kW (VS.II) | | 1 mánuður | | 4. Yfirvélstjóri 1500 kW og minna og undirvélstjóri ótakmarkað (VS.I) | | 9 mánuðir sem vélstjóri | VS.I – 3. stig | 7. 1. vélstjóri ótakmarkað og yfirvélstjóri minna en 3000 kW (VF.II) | Sveinspróf eða viðurkennd verkstæðisþjálfun í landi eða um borð | 12 mánuðir sem vélstjóri | VF.II – 4. stig | 8. Yfirvélstjóri ótakmarkað(VF.I) | Sveinspróf eða viðurkennd verkstæðisþjálfun í landi eða um borð | 24 mánuðir sem vélstjóri, eftir að hafa öðlast rétt til að vera 1. vélstjóri - ótakmarkað | VF.I – 4. stig |
Um lágmarksfjölda vélstjórnarmanna á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum gilda eftirfarandi reglur: Vélarafl skips | Vélstjórn | 250 til og með 750 kW og skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd | Vélavörður (SSV), sem má vera hinn sami og skipstjóri (SS) sé hann eini réttindamaðurinn í áhöfn og hafi skírteini til að gegna þeim störfum. Ekki er skylt að vélavörður sé í áhöfn skips ef gerður hefur verið samningur við þjónustuaðila um viðhald vélbúnaðar skipsins og sá samningur er staðfestur af Siglingastofnun Íslands. | 250 til og með 750 kW og skip 24 metrar og styttri að skráningarlengd | Yfirvélstjóri (VVy) og vélavörður (VV). Heimilt er að vera án vélavarðar að fenginni heimild mönnunarnefndar ef útivistartími er styttri en 14 klst. | 250 til og með 750 kW | Yfirvélstjóri (VS.III) og vélavörður (VV). Heimilt er að vera án vélavarðar að fenginni heimild mönnunarnefndar ef útivistartími er styttri en 14 klst. | 751 til og með 1500 kW | Yfirvélstjóri (VS.1) og 1. vélstjóri (VS.II) | 1501 til og með 1800 kW | Yfirvélstjóri (VF.III) og 1. vélstjóri (VF.IV) | 1800 kW - 3000 kW | Yfirvélstjóri (VF.III), 1. vélstjóri (VF.IV) og undirvélstjóri (VS.II) | >3000 kW | Yfirvélstjóri (VF.I), 1. vélstjóri (VF.II) og undirvélstjóri (VS.I) |
9. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1., 3., og 4. mgr. 5. gr., 1. og 3. mgr. 6. gr., 3. og 4. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 19. gr. laga um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007 og staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Samgönguráðuneytinu, 20. maí 2008. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |