1. gr. Á eftir orðinu „fæðuinntöku“ í 1. málsl. 2. mgr. 4. gr. kemur: og upptöku næringarefna. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu „Næringarefni og sérfæði frá Sjúkratryggingum Íslands“ með reglugerðinni: Í flokknum 98 Næringarefni og sérfæði verða eftirfarandi breytingar: Í stað orðanna „eitt staðalfrávik“ í 2. mgr. kemur: tveimur staðalfrávikum. Við 3. mgr. bætist nýr málsl. sem orðast svo: Miða skal við að BMI (Body Mass Index: þyngd/hæð²) sé ≤ 16 eða að um sé að ræða ≥ 20% þyngdartap á minna en tveimur mánuðum þrátt fyrir að BMI sé > 18,5.
Í flokknum 98 06 Lífsnauðsynleg næringarviðbót vegna vannæringar og sérfæði verða eftirfarandi breytingar: mgr. í flokknum 98 06 03 Næringarviðbót vegna vannæringar, vanþrifa og kyngingarerfiðleika, drykkir og duft orðast svo: Miðað er við að BMI (Body Mass Index: þyngd/hæð²) sé < 18,5 eða að um ≥ 10% þyngdartap sé að ræða á minna en tveimur mánuðum þrátt fyrir að BMI sé > 18,5. Við flokkinn 98 06 09 Næringardrykkir vegna efnaskiptasjúkdóma (sykursýki) og ónæmisbælingar bætist nýr málsl. sem orðast svo: Miðað er við að BMI (Body Mass Index: þyngd/hæð²) sé < 18,5 eða að um ≥ 10% þyngdartap sé að ræða á minna en tveimur mánuðum þrátt fyrir að BMI sé > 18,5. Flokkur 98 06 18 Próteinskert fæði vegna nýrna- og lifrarsjúkdóma fellur brott. Flokkur 98 06 21 Sojamjólk, aðrar kalkbættar sojavörur eða kalkbætt sérfæði vegna ofnæmis fyrir mjólk fellur brott. Í flokknum 98 06 24 Peptíðmjólk/amínósýrublanda (sérfæði) vegna ofnæmis fyrir mjólk verða eftirfarandi breytingar: - Í stað orðanna „eða barnaofnæmislækni“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: barnaofnæmislækni eða meltingarlækni.
- Orðin „og 15.900 kr. fyrir börn 2ja til 18 ára“ í 2. mgr. falla brott.
Flokkur 98 06 27 Glútensnautt fæði (sérfæði) vegna ofnæmis/óþols fyrir hveiti fellur brott.
3. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2011. Heilbrigðisráðuneytinu, 15. desember 2010. Guðbjartur Hannesson. Guðríður Þorsteinsdóttir. |