Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Leiðrétt 11. júlí 2022:
HTML-texti og PDF-skjal: Tilvísun til reglugerðar í EES-viðbæti í lok 3. gr. var með hlekk í ranga reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB). Hlekkur í rétta reglugerð hefur verið settur inn.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 773/2022

Nr. 773/2022 27. júní 2022

REGLUR
um tilkynningar Fjármálaeftirlitsins um skráningu rekstraraðila evrópskra áhættufjármagnssjóða (EuVECA).

 1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um tilkynningar Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 345/2013 um evrópska áhættufjármagnssjóði (EuVECA), sbr. lög nr. 31/2022 um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði.

 

2. gr.

Form tilkynninga Fjármálaeftirlitsins.

Samkvæmt 1. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 345/2013 er þess krafist af lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríkjum EuVECA að þau tilkynni gistiaðildarríkjum og Evrópsku verðbréfa­markaðseftirlitsstofnuninni (ESMA) um atvik sem tengjast vegabréfum rekstraraðila EuVECA. Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. sömu reglugerðar tekur tilkynningarskyldan jafnframt til þess er rekstraraðilar EuVECA eru teknir af skránni. Reglur þessar eru settar til að innleiða tæknilega framkvæmdastaðla sem mæla fyrir um form slíkra tilkynninga og Fjármálaeftirlitinu ber að taka mið af.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerðar (ESB).

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 593/2014 frá 3. júní 2014, um tæknilega framkvæmdastaðla að því er varðar form tilkynninga samkvæmt 1. mgr. 16. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 345/2013 um evrópska áhættufjármagnssjóði, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndar­innar nr. 64/2018 frá 23. mars 2018, bls. 51. Reglugerðin er birt í EES-við­bæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 26 frá 23. apríl 2020, bls. 39-41.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. tölul. 3. mgr. 16. gr. laga nr. 31/2022, um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, öðlast gildi 1. júlí 2022.

 

Seðlabanka Íslands, 27. júní 2022.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Björk Sigurgísladóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 29. júní 2022