Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 504/2016

Nr. 504/2016 29. apríl 2016

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015:

  1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1924 frá 26. október 2015 um breytingu á ákvörðun 2011/101 (SSUÖ) um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.8.
  1.9 Ákvörðun ráðsins 2016/220/SSUÖ frá 15. febrúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.9.
  2.11 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1919 frá 26. október 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.11.
  2.12 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1921 frá 26. október 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.12.
  2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/214 frá 15. febrúar 2016 um breytingu á reglugerð ráðs­ins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgi­skjal 2.13.
  2.14 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/218 frá 16. febrúar 2016 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.14.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2016