Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1092/2023

Nr. 1092/2023 4. október 2023

REGLUR
um útlánaáhættu fjármálafyrirtækja.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu í sam­ræmi við lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

 

2. gr.

Útreikningur á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu.

Fjármálafyrirtæki sem skylt er að reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu skal fylgja ákvæðum reglugerða (ESB) sem tilgreindar eru í 3. gr.

Við mat á mikilvægi lánaskuldbindingar sem er komin fram yfir gjalddaga skal fjármála­fyrirtæki miða bæði við 1% af heildarskuldbindingum lántaka og 15.000 kr. fyrir smásölu­áhættu­skuldbind­ingar og 75.000 kr. fyrir aðrar skuldbindingar í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/171, sbr. 3. gr.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 183/2014 frá 20. desember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina útreikningana á sértækum og almennum leiðréttingum á útlánaáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 285-288.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/585 frá 18. desember 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tilgreiningu á áhættutímabili tryggingarfjár, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 254-256.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1646 frá 13. september 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar aðalvísitölur og viðurkenndar kaup­hallir í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 373-383.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/171 frá 19. október 2017 um við­bætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 um tæknilega eftirlits­staðla fyrir mikilvægismörkin fyrir lánaskuldbindingar sem komnar eru fram yfir gjalddaga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 9. mars 2023, bls. 33, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðuninni.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/931 frá 1. mars 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina aðferðina til að bera kennsl á afleiðuviðskipti með einn eða fleiri mikilvæga áhrifaþætti áhættu með tilliti til 5. mgr. 277. gr., formúluna til að reikna út eftirlitsdeltastuðul kaups- og söluréttar sem tengdur er við vaxtaáhættuflokk og aðferðina til að ákvarða hvort viðskipti séu gnótt- eða skortstaða í helsta áhrifaþætti áhættu eða í mikilvægasta áhrifaþættinum í tilteknum áhættuflokki að því er varðar a- og b-lið 3. mgr. í 279. gr. a. í staðalaðferð fyrir útlánaáhættu mótaðila, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 141/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 94. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 30. mars 2023, bls. 542-547.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/954 frá 12. maí 2022 um breyt­ingar á framseldri reglugerð (ESB) nr. 183/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina útreikningana á sértækum og almennum leiðréttingum á útlánaáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 281/2022 frá 28. október 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 35 frá 4. maí 2023, bls. 8.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1650 frá 24. mars 2022 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í reglugerð (ESB) 2016/1646 að því er varðar aðalvísitölur og viðurkenndar kauphallir í samræmi við reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2023 frá 17. mars 2023.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/511 frá 24. nóvember 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir útreikning fjárhæðar áhættuveginnar áhættuskuldbindingar sjóða um sameiginlega fjárfestingu samkvæmt umboðsaðferðinni, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2023 frá 13. júní 2023.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum fram­kvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2018/171, 2022/954, 2022/1650 og 2023/511 í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32018R0171, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 32, þann 6. febrúar 2018, bls. 1-5;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R0954, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 165, þann 21. júní 2022, bls. 24-25;
  3. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R1650, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 249, þann 27. september 2022, bls. 1-9;
  4. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32023R0511, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 71, þann 9. mars 2023, bls. 1-3.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 5. mgr. 78. gr. a og 24., 26., 35., 41., 44. og 45. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 750/2023 um útlánaáhættu fjármálafyrirtækja.

 

Seðlabanka Íslands, 4. október 2023.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 18. október 2023