Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 657/2021

Nr. 657/2021 1. júní 2021

REGLUGERÐ
um bann við veiðum á ígulkerum á veiðisvæðum í Breiðafirði.

1. gr.

Frá 4. júní 2021 eru allar veiðar á ígulkerum óheimilar á svæðum A, B og C í Breiðafirði, sbr. reglu­gerð nr. 765/2020 um veiðar á ígulkerum.

 

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. júní 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 3. júní 2021