Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 357/2017

Nr. 357/2017 7. apríl 2017

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 140/2014 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglnanna:

  1. Í stað tölunnar „30“ í 4. málsl. i. liðar kemur: 40.
  2. 1. málsl. v. liðar orðast svo: Rannsóknarverkefni til meistaraprófs er 40 e. og skal að jafnaði unnið á seinna námsári meistaranámsins.
  3. Í stað tölunnar „15“ í 2. málsl. v. liðar kemur: 20.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af lyfjafræðideild og stjórn heilbrigðisvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar taka gildi frá og með háskólaárinu 2017-2018.

Háskóla Íslands, 7. apríl 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2017