I. KAFLI
Almenn atriði.
1. gr.
Inntak fjárhagsaðstoðar.
Skylt er að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglna þessara.
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, m.a. vegna heimilisstofnunar, náms eða óvæntra áfalla, sbr. IV. kafla reglna þessara.
Gefa skal sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskavænlegu félagsstarfi, í samræmi við 30. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum
Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt lögum um námsstyrki.
Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsþjónustunnar, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Fjárhagsaðstoð er veitt á formi framfærslustuðnings eða tilboðs um starf eða virkniúrræði. Tilgangur aðstoðar er að:
- Styðja einstaklinga sem aðstoðar njóta til sjálfsbjargar.
- Gera þeim kleift að framfleyta sér og fjölskyldu sinni án aðstoðar.
- Stuðla að valdeflingu þeirra.
2. gr.
Framfærsluskylda og fjárhagsaðstoð.
Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Þeim er sækir um aðstoð skv. reglum þessum er skylt að leita sér að atvinnu hér á landi og taka þeirri atvinnu sem býðst nema því aðeins að veikindi, örorka, hár aldur eða aðrar gildar ástæður hamli því. Fjárhagsaðstoð skal veitt fólki í tímabundnum erfiðleikum og er hún hugsuð sem stuðningur við einstakling eða fjölskyldur til að mæta grunnþörfum þeirra.
Fólk sem er í skráðri sambúð í þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón. Sambúðin skal hafa verið skráð í þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram, sbr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
3. gr.
Fjárhagsaðstoð og heimild til lækkunar á framfærslustyrk.
Sé umsækjandi vinnufær skal fjárhagsaðstoð alla jafna veitt sem tilboð um tímabundið launað starf eða virkniúrræði samhliða fjárhagsstyrk. Þegar fjárhagsaðstoð er veitt í formi tilboðs um tímabundið starf, skulu kjarasamningsbundin laun að teknu tilliti til starfshlutfalls aldrei vera lægri en grunnframfærsla skv. 11. gr. reglna þessara.
Hafni umsækjandi atvinnu eða virkni, eða hafi sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa er heimilt að greiða honum allt að hálfri upphæð framfærslustyrks hans skv. 11. gr. þann mánuð sem hann hafnar vinnu eða úrræði svo og tvo mánuði þar á eftir.
Sama á við atvinnulausan umsækjanda sem ekki framvísar minnisblaði atvinnuleitanda án viðhlítandi skýringa og umsækjanda sem hætt hefur þátttöku í átaksverkefni, nema veigamiklar ástæður sem fram koma við mat á aðstæðum umsækjanda mæli gegn því.
Að loknu allt að þriggja mánaða skerðingartímabili skv. 2. mgr. er heimilt að bjóða einstaklingi starf eða virkniúrræði á ný þegar tveir mánuðir eru liðnir frá því skerðingartímabili lauk. Hafni einstaklingur starfi eða úrræði á ný, er heimilt að greiða honum allt að hálfri upphæð framfærslustyrks með sama hætti þann mánuð sem hann hafnar vinnu eða úrræði svo og fimm mánuði þar á eftir.
4. gr.
Réttur fylgir lögheimili.
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram í lögheimilissveitarfélagi. Þurfi fólk á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi er skylt að veita tímabundna aðstoð. Skal um það haft samráð við lögheimilissveitarfélag og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess. Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Telji starfsmaður dvöl umsækjanda í sveitarfélaginu, sem skráður er þar með lögheimili, ekki ígildi fastrar búsetu, sbr. ákvæði lögheimilislaga nr. 21/1990, skal tekin ákvörðun um hvort málið verði sent Þjóðskrá til nánari athugunar.
5. gr.
Form framfærslustuðnings.
Framfærslustuðningur er ýmist veittur í formi styrkja eða lána. Stuðningur skal einungis veittur sem lán þegar könnun á aðstæðum umsækjanda með tilliti til eigna og framtíðartekna leiðir í ljós að hann muni fær um að endurgreiða lánið eða ef um er að ræða að umsækjandi bíði afgreiðslu á bótum eða lífeyri frá öðrum opinberum aðilum sem hann á rétt til, svo sem frá Tryggingastofnun ríkisins, Atvinnuleysistryggingasjóði eða lífeyrissjóðum. Skal að öllu jöfnu gerður samningur um lánið með aðkomu lánastofnunar.
Við endurkröfu lánsins skal leitast við að koma lánþega ekki í þá stöðu að hann geti ekki séð sér og sínum farborða. Lán skal eingöngu veitt þeim umsækjendum sem ætla má að hafi ekki lánstraust hjá lánastofnunum.
6. gr.
Tímabil samþykkis hverju sinni.
Fjárhagsaðstoð skal að öðru jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði. Enginn skal njóta fjárhagsaðstoðar án þess að vera í samstarfi við félagsráðgjafa um lausn mála sinna.
Fjárhagsaðstoð er greidd frá umsóknardegi og að jafnaði er um eftir á greiðslur að ræða.
7. gr.
Fjárhagsaðstoð aftur í tímann.
Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Rökstuddar ástæður þurfa að liggja að baki ef aðstoð er veitt aftur í tímann og verður skilyrðum reglna þessara fyrir fjárhagsaðstoð að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.
II. KAFLI
Umsókn um fjárhagsaðstoð.
8. gr.
Umsókn og fylgigögn.
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram með rafrænum hætti á vefsíðu Hafnarfjarðarkaupstaðar. Í neyðartilfellum er heimilt að leggja umsókn fram í dvalarsveitarfélagi, sbr. 4. gr. Umsókn skal undirrituð á sérstök umsóknareyðublöð, þar sem fram koma upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, kennitölur maka og barna á framfæri og nákvæmar upplýsingar um tekjur og eignir. Umsókn skal fylgja staðfest skattframtal vegna síðastliðins árs, útprentun úr staðgreiðsluskrá RSK, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsókn er lögð fram og mánuðinn á undan, þar með taldar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, innlendum og erlendum lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóðum stéttarfélaga eða öðrum aðilum sem og afrit þinglýstra skjala til staðfestingar á kostnaði vegna húsaleigu eða eigin húsnæði. Umsækjanda ber að leggja fram dvalarleyfi í þeim tilfellum sem það á við.
Umsækjandi getur veitt öðrum skriflegt umboð til að sækja um aðstoð fyrir sína hönd.
Þegar umsækjandi er atvinnulaus skal hann framvísa tilskildum gögnum frá vinnumiðlun. Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann framvísa greiðsluseðli frá atvinnuleysistryggingasjóði. Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði. Læknisvottorð skulu vera útgefin af heilsugæslu eða sérfræðilækni sem annast mál einstaklingsins. Ótímabundið læknisvottorð gildir að hámarki í þrjá mánuði frá dagsetningu vottorðs. Hafi hann ekki skráð sig hjá vinnumiðlun, án viðhlítandi skýringa, eða sætir biðtíma hjá vinnumiðlun hefur það áhrif á fjárhæð, sbr. 3. gr. þessara reglna.
9. gr.
Upplýsingar um tekjur og fjárhag umsækjanda.
Fjölskylduráð getur, ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um tekjur og eignir umsækjanda, m.a. hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingasjóði og tryggingafélögum. Skal það gert í samráði við umsækjanda. Neiti umsækjandi að veita upplýsingar um fjárhag sinn eða maka stöðvast afgreiðsla umsóknar hans.
Skylt er að veita fjölskylduráði eða starfsmönnum þess upplýsingar úr skattframtölum þeirra sem leita fjárhagsaðstoðar. Sama gildir um upplýsingar úr skattframtölum lögskylds framfæranda, enda hafi umsækjandi veitt fjölskylduráði og/eða starfsmönnum umboð til að afla þessara upplýsinga, sbr. 24. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur peningalegar eignir eða aðrar eignir umfram íbúðarhúsnæði sem umsækjandi eða fjölskylda hans býr í og eina fjölskyldubifreið, eða hafa nýlega selt eignir sínar skal honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða þó að tekjur hans séu undir viðmiðunarmörkum.
III. KAFLI
Réttur til fjárhagsaðstoðar. Mat á fjárþörf og útreikningur fjárhagsaðstoðar.
10. gr.
Mat á fjárþörf.
Við ákvörðun á fjárhagsaðstoð skal grunnfjárþörf til framfærslu, sbr. 11. gr., lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 12. gr.
Tekið skal tillit til sérstakra aðstæðna eftir því sem við á, sbr. reglur þessar.
11. gr.
Grunnfjárhæð framfærslustyrks.
Framfærslugrunnur tekur mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og breytist 1. janúar ár hvert miðað við vísitölu neysluverðs. Grunnfjárhæð fyrir einstakling er 190.550 kr.
Framfærslugrunnur vegna einstaklings 18 ára og eldri er 1, en vegna hjóna og fólks í sambúð 1,6 og 0,5 vegna einstaklinga sem búa hjá foreldrum, ættingjum eða öðrum og hafa tekjur undir viðmiðunarmörkum njóti þeir sannanlega hagræðis af sambúðinni.
Heimilt er að veita sérstaka fjárhagsaðstoð til foreldra með tekjur sem eru við eða lægri en grunnfjárhæðin.Um er að ræða aðstoð til að greiða áfallandi greiðslur fyrir daggæslu barns í heimahúsum, leikskóla, skólamáltíðir, frístundaheimili, sumardvöl og/eða þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Ætíð skal vera um tímabundna aðstoð að ræða og aldrei lengur en í fjóra mánuði. Viðmiðunarmörk aðstoðar með hverju barni eru að hámarki 15.000 kr. á mánuði. Leitast skal við að kanna aðstæður beggja foreldra þegar mat er lagt á umsókn um aðstoð vegna barna.
Veita skal þeim sem fengið hafa fjárhagsaðstoð undangengna þrjá mánuði samfellt sérstaka desemberuppbót sem nemur 25% af grunnfjárhæð skv. reglunum.
Heimilt er að greiða foreldrum sem njóta fjárhagsaðstoðar sérstakan styrk vegna fermingar barna. Fjárhæð fermingarstyrkja skal taka mið af viðmiðunarfjárhæðum dómsmálaráðuneytisins í leiðbeiningum til sýslumanna vegna krafna um sérstök framlög.
12. gr.
Tekjur umsækjanda.
Allar tekjur umsækjanda og maka ef við á, í þeim mánuði er sótt er um og mánuðinum á undan, eru taldar með við mat á fjárþörf. Með tekjum er átt við allar innlendar og erlendar skattskyldar tekjur einstaklings og sambúðaraðila s.s. atvinnutekjur, aðrar skattskyldar tekjur; greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, Sjúkratryggingum Íslands eða sjúkrasjóðum stéttarfélaga, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur, verktakagreiðslur, greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, mæðra- og feðralaun og framlag til menntunar eða starfsþjálfunar samkvæmt 62. gr. barnalaga nr. 76/2003 sem ungmenni 18-20 ára kunna að fá og koma þær til frádráttar. Miða skal við heildartekjur áður en tekjuskattur hefur verið dreginn frá.
Meðlag og barnabætur teljast ekki til tekna enda ekki reiknað með framfærslukostnaði vegna barna við mat á fjárþörf.
Húsaleigu- og vaxtabætur eru ekki taldar til tekna. Gert er ráð fyrir að húsnæðiskostnaði verði fyrst og fremst mætt með greiðslum vaxta- og húsaleigubóta, en einnig er gert ráð fyrir honum í grunnfjárhæð.
13. gr.
Greiðslur meðlags.
Þegar tekjur umsækjanda eru við eða lægri en grunnfjárhæðin skal taka tillit til meðlagsgreiðslna með barni eða börnum sem umsækjandi hefur greitt með reglulega fram að þeim tíma að hann fær fjárhagsaðstoð. Hækkar fjárhagsaðstoðin sem nemur einu meðlagi eins og það er á hverjum tíma með hverju barni. Umsækjandi skal sýna fram á að hann hafi staðið í skilum með meðlag a.m.k. undanfarna þrjá mánuði. Átt er við meðlagsgreiðslur hverju sinni, en ekki uppsafnaðar meðlagsskuldir.
Sérákvæði.
14. gr.
Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar og fólk í hlutastörfum.
Atvinnurekendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem hafa lægri tekjur en sem nemur grunnfjárhæð, eiga rétt á fjárhagsaðstoð að því tilskildu að þeir hafi stöðvað atvinnurekstur og leitað réttar síns til atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. og 4. mgr. 1. gr. reglna þessara.
Sé umsækjandi í hlutastarfi með tekjur undir grunnfjárhæð skal gerð krafa um að viðkomandi skrái sig hjá vinnumiðlun og leiti að fullu starfi.
15. gr.
Námsmenn.
Einstaklingar sem stunda nám sem lánshæft er hjá LÍN njóta ekki réttar til fjárhagsaðstoðar skv. III. kafla reglna þessara.
IV. KAFLI
Heimildir vegna sérstakra aðstæðna.
16. gr.
Aðstoð til tekjulágra foreldra vegna náms 16 og 17 ára barna.
Heimilt er að veita foreldrum með tekjur undir grunnfjárhæð fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra. Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað, skólagjöld og ferðakostnað til og frá skóla.
17. gr.
Námsstyrkir.
Heimilt er að veita lán/styrk til einstaklinga sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður og hafa ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla, sem stuðning við markmið í vinnu með félagsráðgjafa sem miðar m.a. að efnahagslega sjálfstæðu lífi viðkomandi. Samþykktir varðandi námskostnað skulu teknar fyrir hverja önn, þannig að aðstoð greiðist áfram þegar umsækjandi sýnir eðlilega námsframvindu. Aðstoðin miðast við fjárhagsaðstoð til framfærslu ásamt almennum skólagjöldum og bókakostnaði.
Leggja skal inn umsókn um námsstyrki fjórum vikum áður en nám hefst.
18. gr.
Greiðsla sérfræðiaðstoðar.
- Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga til einstaklinga sem hafa tekjur við eða undir grunnfjárhæð og fullnægja a.m.k. einu eftirfarandi skilyrða:
a) |
hafa átt við langvarandi atvinnuleysi að stríða eða verið tekjulausir undanfarna sex mánuði eða lengur, |
b) |
hafa notið fjárhagsaðstoðar til framfærslu til lengri tíma. |
Þá er heimilt að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga barna þeirra foreldra sem fullnægja sömu skilyrðum. Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 80.000 kr. á ári. Kostnaðaráætlun tannlæknis skal fylgja með umsókn.
- Heimilt er að veita einstaklingum með tekjur við eða undir grunnfjárhæð undangengna fjóra mánuði í eftirtöldum aðstæðum fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá viðurkenndum fagaðilum með lögvernduð starfsheiti og siðareglur ef það er liður í umfangsmeiri aðstoð og fyrirsjáanlegt að ekki sé unnt að veita þjónustuna innan fjölskyldu- og barnamálasviðs eða á vegum heilbrigðisstofnana.
a) |
einstaklingum sem hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða, |
b) |
einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum, svo sem skyndilegum ástvinamissi eða alvarlegu ofbeldi. |
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru allt að 80.000 kr. á ári. Heimilt er að kalla eftir umsögn fagaðila og meta þörf á frekari sérfræðiaðstoð.
19. gr.
Útfararstyrkir.
Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið getur ekki staðið undir útför hins látna. Viðmiðunarmörk eru 200.000 kr.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk: Staðfest ljósrit af skattframtali hins látna, launaseðlar og greiðsluyfirlit frá tryggingum og lífeyrissjóðum og staðfesting frá stéttarfélagi um rétt til útfararstyrks.
Heimilt er að veita tekjulágu foreldri eða foreldrum fjárhagsaðstoð vegna útfararkostnaðar barns.
Samþykkt aðstoð greiðist gegn framvísun reiknings frá útfararstofu og annarra gagna um kostnað vegna útfarar.
20. gr.
Áfallaaðstoð.
Heimilt er að veita tekjulágum einstaklingum eða fjölskyldum fjárhagsaðstoð í eftirfarandi tilvikum:
|
a) |
vegna skyndilegs missis búslóðar eða annars eignamissis sem orðið hefur vegna bruna, eða náttúruhamfara. Aðstoðin kemur einungis til álita þegar tjónþoli hefur ekki haft heimilistryggingu eða aðra tryggingu sem bætir tjónið, |
|
b) |
þegar rýma þarf íbúð af heilbrigðisástæðum er heimilt að veita aðstoð til kaupa á búslóð. |
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 100.000 kr. Gildistími umsóknar er þrír mánuðir frá samþykktardegi. Skilyrði er að lögð séu fram gögn frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis þar að lútandi.
21. gr.
Lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu.
Heimilt er að veita einstaklingum með tekjur við eða undir grunnfjárhæð lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Skilyrði er að viðkomandi geti greitt áfallandi mánuð sjálfur. Þinglýstur húsaleigusamningur skal liggja fyrir eða önnur staðfesting um að samningur eigi við rök að styðjast. Miða skal við að leigufjárhæð sé í samræmi við leigu á almennum markaði. Heimilt er að veita lán fyrir allt að þriggja mánaða fyrirframgreiðslu. Gildistími húsaleigusamnings skal vera a.m.k. 12 mánuðir. Einstaklingur sem hefur áður fengið lán vegna þessarar greinar fær ekki lán skv. greininni fyrr en fyrra lán er greitt að fullu.
22. gr.
Aðstoð vegna sérstakra fjárhagserfiðleika.
Heimilt er að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki sem fengið hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu undangengna sex mánuði eða lengur lán eða styrk vegna sérstakra fjárhagserfiðleika, enda sé leitast við að afla upplýsinga um:
|
a) |
hvort umsækjandi eigi möguleika á lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana, |
|
b) |
hvort umsækjandi hafi leitað til Umboðsmanns skuldara eða annars og að fyrir liggi yfirlit um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á. |
|
c) |
hvort fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra. |
Ekki er heimilt að veita styrk eða lán til greiðslu skulda við banka, sparisjóði eða aðrar lánastofnanir, s.s. greiðslukortafyrirtæki. Þá er hvorki heimilt að veita styrk né lán til greiðslu skattskulda eða sekta, né heldur til greiðslu skulda við einkaaðila.
23. gr.
Sérstakar heimildir.
Heimilt er að veita einstaklingum með tekjur um eða undir viðmiðunarmörkum fjárhagsaðstoð til kaupa á nauðsynjum, svo sem gleraugum, fatnaði, heyrnartækjum og öðrum hjálpartækjum. Jafnframt er heimilt að veita fæðingarstyrki og fatastyrki séu tekjur undir viðmiðunarmörkum. Þá er heimilt að veita einstaklingum á meðferðar- eða sjúkrastofnunum lán eða styrk vegna húsnæðiskostnaðar til allt að tveggja mánaða.
Heimilt er að veita einstaklingum sem taka þátt í markvissum stuðningi sérstaka aðstoð.
Skilyrði er að umsækjandi eigi, eða hafi átt í miklum félagslegum erfiðleikum og hafi, að mati ráðgjafa, raunverulegan áhuga á endurhæfingu. Gerður skal samningur um félagslega ráðgjöf og þegar við á endurhæfingaráætlun hjá Tryggingastofnun ríkisins. Í áætlun skulu koma fram markmið, tímaáætlun, ábyrgð viðkomandi og tilgreind tegund aðstoðar, eftirfylgni og reglubundið mat á árangri. Leggja skal samninginn fyrir teymisfund til samþykktar.
Heildarkostnaður fjárhagsaðstoðar getur numið allt að kr. 300.000 á mánuði, að meðtöldum atvinnu- eða námstengdum átaksverkefnum.
Heimilt er að greiða gjald fyrir einstakling sem dvelur á meðferðarheimili.
V. KAFLI
Málsmeðferð, sbr. ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og ákvæði XV. og XVI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
24. gr.
Könnun á aðstæðum.
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um fjárhagsaðstoð hefur borist. Sama á við ef fjölskylduráði berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti. Fjölskylduráð skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og sjá jafnframt til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.
25. gr.
Samvinna við umsækjanda.
Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti talsmann hans ef við á.
26. gr.
Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn og fulltrúar í fjölskylduráði kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi.
Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
27. gr.
Leiðbeiningar til umsækjanda.
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda félagslega og fjárhagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Berist skriflegt erindi sem ekki snertir starfssvið fjölskyldu- og barnamálasviðs, skal starfsmaður í samráði við umsækjanda framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem auðið er.
28. gr.
Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.
Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.
29. gr.
Rangar eða villandi upplýsingar.
Fjárhagsaðstoð veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær er endurkræf og getur fjölskyldu-og barnamálasvið endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar.
30. gr.
Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.
Starfmenn fjölskyldu- og barnamálasviðs taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði fjölskylduráðs.
31. gr.
Kynning á ákvörðun um fjárhagsaðstoð.
Þar sem starfsmenn fjölskylduráðs hafa umboð til að taka ákvörðun um fjárhagsaðstoð skulu þeir kynna umsækjanda niðurstöðu tryggilega og kynna honum um leið rétt hans til að fara fram á að fjölskylduráð fjalli um umsóknina. Umsækjandi hefur að öðru jöfnu fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til fjölskylduráðs frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Fjölskylduráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Ákvörðun fjölskylduráðs skal kynnt umsækjanda tryggilega og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar velferðarmála.
32. gr.
Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Umsækjandi getur skotið ákvörðun fjölskylduráðs til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun fjölskylduráðs.
33. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, voru samþykktar í fjölskylduráði Hafnarfjarðar 27. mars 2020 og í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 1. apríl 2020, taka gildi 15. maí 2020.
Jafnframt falla úr gildi reglur um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað nr. 320/2014.
Hafnarfirði, 15. apríl 2020.
Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs.
|