Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 879/2020

Nr. 879/2020 24. ágúst 2020

REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 18. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/319 frá 6. febrúar 2019 um breytingu á IX. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 og XV. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar heilbrigðis­vottun við innflutning til Sambandsins er varðar smitandi svampheilakvilla. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2020, frá 12. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50, frá 23. júlí 2020, bls. 466.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. september 2020