1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/383 frá 16. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2870/2000 um tilvísunaraðferðir Bandalagsins fyrir greiningu brenndra drykkja og um niðurfellingu á reglugerð (EBE) nr. 2009/92 um greiningaraðferðir Bandalagsins á etanóli úr landbúnaði sem er notað við framleiðslu brenndra drykkja, kryddvína, drykkja sem eru blandaðir með kryddvínum og hanastéla sem eru blönduð með kryddvínum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 119.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1303 frá 25. apríl 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 að því er varðar skilgreiningu og kröfur varðandi etanól úr landbúnaði. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 126.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, nr. 130/2014, og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|