Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1152/2023

Nr. 1152/2023 1. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, nr. 651/2001.

1. gr.

Við 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar bætist:

Sé arfgerð um næmi fyrir riðu þekkt í hjörð eða að undangenginni arfgerðagreiningu er yfir­dýralækni heimilt að leggja til að lóga hluta hjarðar.

 

2. gr.

Á eftir 2. ml. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi:

Þá getur Matvælastofnun einnig veitt leyfi til flutnings lamba með mögulega verndandi arfgerðir gegn riðu milli hjarða innan sýktra svæða, að því tilskildu að hinar mögulega verndandi arfgerðir hafi verið samþykktar af stofnuninni og að lögð sé fram tímasett ræktunaráætlun um innleiðingu verndandi arfgerða fyrir viðkomandi hjörð.

 

3. gr.

Á eftir „alls“ í 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: eða hluta.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 826/2023 um (6.) breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, 651/2001.

 

Matvælaráðuneytinu, 1. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 2. nóvember 2023