Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt nýja deiliskipulagsáætlun og breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Tengivirki Landsnets á Sandskeiði. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir tengivirki Landsnets við Sandskeið. Tengivirkið er um 1,7 km norðan við Suðurlandsveg (þjóðveg nr. 1). Tillagan felur í sér að reist verður nýtt tengivirki við Sandskeið. Tengivirkið mun gegna mikilvægu hlutverki í meginflutningskerfi raforku á suðvesturhorni landsins. Svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkast að línuvegi til suðurs og óbyggðu svæði til norðurs, austurs og vesturs.
Leirvogstunga 47-49. Um er að ræða breytingu vegna Leirvogstungu 47-49 (oddatölur). Einbýlishúsalóðirnar Leirvogstunga nr. 47 og 49, húsgerð E-EB, eru sameinaðar í eina fjögurra eininga raðhúsalóð, nr. 47, 49, 51 og 53, húsgerð R-IK.
Ofangreind ný deiliskipulagsáætlun og breyting á deiliskipulagi hafa hlotið meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 27. júní 2017,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|