Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 356/2019

Nr. 356/2019 16. apríl 2019

AUGLÝSING
(VIII) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Suðurnesjabær.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Sandgerðis með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Sandgerði.

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 40% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorsk­ígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum í Sandgerði á fisk­veiði­árinu 2017/2018 og 60% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Sandgerðis, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Sandgerði í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Sandgerðis og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Suðurnesjabæjar um úthlutun byggðakvóta í Sandgerði á fiskveiðiárinu 2018/2019, sam­kvæmt auglýsingu nr. 188/2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. apríl 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. apríl 2019