Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 126/2024

Nr. 126/2024 15. janúar 2024

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1240/2023 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/931 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 með því að mæla fyrir um reglur um framkvæmd opinbers eftirlits að því er varðar aðskotaefni í matvælum.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli, 13. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 6. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðis­þjónustu við dýr og 74. gr. laga nr. 14/2022 um dýralyf.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 15. janúar 2024.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 2. febrúar 2024