Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 369/2024

Nr. 369/2024 7. mars 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  7.34 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/577 frá 12. febrúar 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.34.
  7.35 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/746 frá 23. febrúar 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.35.
  8.26 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/576 frá 12. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.26.
  8.27 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/745 frá 23. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.27.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 7. mars 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 22. mars 2024