1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra og sveitarstjórna, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 2. maí 2028:
- ELMA Orkuviðskipti ehf.
- Orka náttúrunnar ohf.
- ON Power ohf.
- Ljósleiðarinn ehf.
2. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 6. maí 2025.
Kristrún Frostadóttir.
|