1. gr. Hitaveita Reykjahlíðar selur hitaorku frá aðveituæð og dreifikerfi veitunnar í Birkilandi við Voga samkvæmt ákvæðum gjaldskrár þessarar. 2. gr. Hitaveita Reykjahlíðar lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn er ætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi eftirlitsmanns hitaveitu. Hitaveitunni er heimilt að takmarka með hemli vatnsrennsli að húsi eftir því sem þörf krefur og er starfsmönnum hitaveitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans. 3. gr. Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns miðað við vatnshita í tengibrunni þar sem stofnæð og heimtaug/dreifikerfi mætast, sem hér segir: a) | Fyrir vatn 80°C og heitara greiðast | kr. | 135 | b) | Fyrir vatn 70°-79°C greiðast | kr. | 109 | c) | Fyrir vatn 69°C og kaldara greiðast | kr. | 82 |
Hitaveitunni er heimilt að færa notendur milli gjaldflokka ef vatnshiti breytist. Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp og ef vatnsmælir bilar áætlar hitaveitan vatnsnotkunina með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hitaveitan lætur húseigendum í té aukamæla ef þess er óskað. 4. gr. Fyrir hverja húsveitu (1. mæli) er greitt fast mánaðargjald sem fer eftir stærð mælis sem hér segir: a) | Fyrir mæli allt að ¾″ | kr. | 1.178 | b) | Fyrir mæli 1″ – 2″ | kr. | 2.374 | c) | Fyrir mæli 3″ og stærri | kr. | 4.730 |
5. gr. Hitaveitugjöld samkvæmt 3. og 4. gr. verða krafin mánaðarlega, þegar eftir mælaálestur. Þó er heimilt að láta líða lengri tíma en einn mánuð milli álestra og fækka gjalddögum. Óski notandi þess að lesið sé af mæli hans utan reglubundins álestrartíma hitaveitunnar og honum gerður sérstakur reikningur, skal hann greiða fyrir það gjald, kr. 1.074. Gjalddagi hitaveitugjalda er við útsendingu reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Ber gjaldanda að greiða reikninginn í bönkum, sparisjóðum og öðrum greiðslustöðum þar sem hitaveitan ákveður. Það eru vanskil ef gjöld fyrir orkunotkun eru ekki greidd innan 30 daga frá útsendingardegi reiknings. 6. gr. Heimæðagjald Hitaveitu Reykjahlíðar í Birkilandi skal vera sem hér segir: Fyrir hverja heimæð | kr. | 450.860 | Stofngjald fyrir hvern mæli umfram einn á sama inntaki er | kr. | 28.898 |
Lóðarhafar greiða auk heimæðargjalds kostnað við lagningu heimæðar frá stofnæð hitaveitu að húsvegg fyrir lengd lagnar umfram 50 metra. Hitaveita Reykjahlíðar hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með 7 daga fyrirvara. Allan kostnað við lokun aðrennslis og opnun á ný greiðir sá sem í vanskilum er auk kr. 2.148 í hvert skipti. 7. gr. Á öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast skattar samkvæmt gildandi reglum á hverjum tíma. 8. gr. Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda. 9. gr. Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis frá 6. mars 2012 nr. 279. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. mars 2013. F. h. r. Kristján Skarphéðinsson. Ólafur Egill Jónsson. |