Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 557/2023

Nr. 557/2023 24. maí 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 8, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/410 frá 19. desember 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþings­ins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Lýðveldinu Kongó, Gíbraltar, Mósambík, Tansaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum í töflu 1 í viðaukanum við framselda reglugerð (ESB) 2016/1675 og fella Níkaragva, Pakistan og Zimbabwe brott úr þeirri töflu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, 11. maí 2023, bls. 631.

 

2. gr.

Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa þannig breyttur.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjár­mögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 24. maí 2023.

 

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 9. júní 2023