Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 616/2023

Nr. 616/2023 5. júní 2023

REGLUGERÐ
um (16.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 27., 28. og 29. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1917 frá 3. nóvember 2021 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að færa 2-(4-metýlfenoxý)-N-(1 H-pýrasól-3-ýl)-N-(þíófen-2-ýlmetýl)asetamíð á skrá Sam­bands­ins yfir bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 296/2022, frá 9. desember 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 26. janúar 2023, bls. 100.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1465 frá 5. september 2022 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar  tiltekin bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2023, frá 17. mars 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30, frá 20. apríl 2023, bls. 366.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1466 frá 5. september 2022 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að taka tiltekin bragðefni af skrá Sambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2023, frá 17. mars 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30, frá 20. apríl 2023, bls. 374.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 5. júní 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. júní 2023