Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 629/2023

Nr. 629/2023 5. júní 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

1. gr.

Við 32. gr. b bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þau tengsl sem umsækjandi myndar við Ísland eftir framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd teljast ekki til sérstakra tengsla.

Umsækjandi telst ekki hafa sérstök tengsl við Ísland nema aðstandandi hans sé búsettur hér á landi í lögmætri dvöl. Við mat á sérstökum tengslum skal m.a. líta til þess hvort umönnunar­sjónarmið séu fyrir hendi, hvort umsækjandi og aðstandandi hans hafi deilt eða alist upp á sama heimili eða hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldisskyldu eða framfærsluskyldu sín á milli. Stjórn­völdum er heimilt að krefja umsækjanda um að sýna fram á umrædd tengsl, t.d. með fram­lagningu skilríkja eða vottorða. Þá er stjórnvöldum heimilt að óska eftir því að aðstandandi umsækj­anda staðfesti umrædd tengsl.

Við mat á sérstökum tengslum ber þó ávallt að hafa til hliðsjónar þau tengsl sem viðkomandi hefur í því ríki þar sem hann hefur heimild til dvalar í, m.a. lengd dvalar í ríkinu, fjölskyldutengsl og samfélagsleg tengsl sem umsækjandi hefur myndað við ríkið. Þá skal jafnframt hafa til hliðsjónar hvort viðkomandi eigi rétt á fjölskyldusameiningu skv. VIII. kafla laga um útlendinga.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 5. júní 2023.

 

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 20. júní 2023