Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 277/2020

Nr. 277/2020 30. mars 2020

REGLUGERÐ
um veiðar á makríl 2020.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til makrílveiða íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands og á samn­ingssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan lögsögu ríkja á árinu 2020.

 

2. gr.

Aflamark.

Aðeins skipum sem hafa aflamark í makríl er heimilt að stunda makrílveiðar.

Á árinu 2020 er leyfilegur heildarafli makríls og skipting hans sem hér segir:

  A B C D E
  Lestir Lestir Lestir Lestir Lestir
 Alls 152.141 8.063 2.000 4.000 138.078

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Frádráttur skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Skerðing vegna framsals til Rússlands.
  4. Til ráðstöfunar, skv. 10. gr. b. laga nr. 116/2006.
  5. Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% umfram aflamark í makríl á árinu 2020 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2021. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2020 til ársins 2021.

 

3. gr.

A- og B-flokkur.

Aflaheimildir í makríl skiptast í A- og B-flokk. Skip sem eru með aflamark í makríl skiptast í A- og B-flokk og fer um skiptinguna eftir því í hvaða flokki aflaheimildir skipsins eru. Ekki er hægt að skipta um flokk á veiðitímabilinu. Óheimilt er að flytja aflamark úr B-flokki yfir í A-flokk nema í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu, ufsa og steinbít að því gefnu að slík skipting samræmist reglum um krókaaflamark þ.m.t. að krókaaflamark verður aðeins flutt til skips sem leyfi hefur til veiða með krókaaflamarki.

 

4. gr.

Veiðitilhögun.

Makrílveiðar í flottroll eru ekki heimilar nær landi en 12 sjómílur frá viðmiðunarlínu.

Þá eru makrílveiðar í flottroll bannaðar á svæði sem afmarkast af línum sem dregnar er milli eftirfarandi hnita:

  1. 68°30 N - 17°00 V
  2. 65°30 N - 17°00 V
  3. 65°30 N - 26°00 V
  4. 66°00 N - 26°00 V
  5. 66°55 N - 24°13 V
  6. 67°40 N - 24°13 V
  7. 68°30 N - 19°04 V

Makrílveiðar í net eru óheimilar.

 

5. gr.

Sýnataka.

Sé makríll veiddur í flottroll eða nót, skulu tekin sýni úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera að minnsta kosti 50 stk. af makríl, sem valin eru af handahófi. Gæta skal þess að sýni sé tekið í öllum tilkynningaskyldum reitum þar sem skipið stundar veiðar. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (veiðiskip, staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnun, þegar að lokinni veiðiferð.

 

6. gr.

Fjarskiptabúnaður.

Fiskiskip sem stunda veiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Land­helgis­gæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutað­eigandi stofnana.

Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjarskipta­búnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upp­lýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

 

7. gr.

Tilkynningar.

Um tilkynningar við makrílveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar um veiði­eftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og taka þær tilkynn­ingar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og fyrirhugaðan löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarkstíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

 

8. gr.

Vigtun og löndun.

Makrílafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Þó er heimilt með leyfi Fiskistofu að landa makrílafla og makrílafurðum í höfnum erlendis, enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar makríls utan íslenskra hafna til Fiskistofu, skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og hvert er áætlað magn makríls.

Landi skip afla utan Íslands skal tilkynna um það í samræmi við ákvæði 5. kafla reglna Norð­austur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) um fiskveiðieftirlit og framkvæmd þess. Tilkynna þarf þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnríkinu. Tilkynningar skal senda með raf­rænum hætti á heimasíðu NEAFC https://psc.neafc.org (opnast í nýjum vafraglugga). Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/designated-contacts (opnast í nýjum vafra­glugga). Samþykki þar til bærra yfir­valda þarf að liggja fyrir áður en löndun hefst.

Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um land­aðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda makrílsins eða stað­fest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Um vigtun á makríl gilda ákvæði reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla og ákvæði reglu­gerðar um vigtun og skráningu meðafla á uppsjávarfiski. Draga skal 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í makríl miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess. Sé makríll veiddur á línu eða handfæri skal afla haldið aðgreindum um borð í veiðiskipi eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun.

Þegar makríll er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,20.

 

9. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 151/1996, um veiðar utan lögsögu Íslands. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála.

 

10. gr.

Lagaheimild og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 605/2019 um veiðar á makríl.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. mars 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2020