Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 639/2017

Nr. 639/2017 13. júlí 2017

AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.

1. gr.

Frá og með 14. júlí til og með 31. júlí 2017 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, Eyja- og Mikla­holts­hreppi til Súðavíkurhrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 322/2017, um strandveiðar fiskveiðiárið 2016/2017.

2. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftir­breytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Fiskistofu, 13. júlí 2017. 

Þorsteinn Hilmarsson,
sviðsstjóri þjónustu- og upplýsingasviðs.

Gunnar H. Sigurðsson.


B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2017