Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 120/2016

Nr. 120/2016 10. febrúar 2016

GJALDSKRÁ
Þjóðskrár Íslands.

I. KAFLI

1. gr.

Öll afhending, miðlun og notkun upplýsinga úr skrám Þjóðskrár Íslands er leyfisskyld og háð sam­þykki stofnunarinnar.

II. KAFLI

Gjald fyrir afnot matsfjárhæða og matskerfa og skráningu nýrra fasteigna.

2. gr.

Gjald fyrir afnot af fasteignamati og
kerfi til álagningar fasteignaskatta.

Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert. Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði.

3. gr.

Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi.

Vátryggingafélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi. Skal gjaldið nema 0,00021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátrygg­inga­félagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega.

4. gr.

Gjald fyrir stofnun fasteignar.

Gjald fyrir stofnun nýrrar fasteignar í fasteignaskrá kr. 31.500

III. KAFLI

Gjald fyrir upplýsingar úr fasteignaskrá og þinglýsingahluta.

5. gr.

Samsetning gjalds.

Auk gjalds fyrir aðgang að upplýsingum skv. ákvæðinu í 6. gr. skal greiða einingaverð, sbr. 7., 8. og 9. gr.

6. gr.

Aðgangur að upplýsingum úr fasteignaskrá.

Gjald fyrir aðgang að upplýsingum úr fasteignaskrá er sem hér segir:

Mánaðarlegt þjónustugjald vefþjónustu og vefuppflettingar kr. 3.500
Stofngjald vefþjónustu kr. 58.500
Stofngjald gagnaveitu kr. 197.100
Gjald fyrir breytingar rafrænna skilríkja kr. 5.800

7. gr.

Einingaverð úr fasteignaskrá.

Greiða skal einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá. Svæðin eru:

  a) mannvirkja- og lóðasvæði,
  b) matssvæði,
  c) eigendasvæði.

Einingaverð er miðað við fjölda fasteigna sem óskað er upplýsinga um og tekur mið af fjölda svæða fyrir hverja fasteign. Miðað er við notkun á einu almanaksári og reiknast afsláttur þegar tilteknum fjölda fasteigna er náð:

Fjöldi fasteigna: Eitt svæði Tvö svæði Þrjú svæði
1 - 70.000 kr. 22 kr. 44 kr. 66
70.001 - 140.000 kr. 19 kr. 38 kr. 57
Fleiri en 140.000 kr. 16 kr. 32 kr. 38

Önnur einingaverð fyrir upplýsingar úr fasteignaskrá eru sem hér segir:

Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) kr. 66
Eigendasaga fasteignar kr. 66
Breytingasaga fasteignar kr. 66

8. gr.

Einingaverð úr þinglýsingarhluta.

a) Veðbandayfirlit:
  Gjald fyrir rafrænar fyrirspurnir úr þinglýsingarhluta er samkvæmt 24. gr. laga nr. 6/2001.
b) Rafræn veðbandavöktun:
  Mánaðargjald fyrir rafræna vöktun á breytingum á veðbandayfirliti eignar er miðað við fjölda eigna í vöktun á hverju almanaksári:
      Fjöldi eigna í vöktun Verð fyrir hverja eign 
      1 - 100 kr.        88
      101 - 1.000 kr.        58
      1.001 - 10.000 kr.        48
      10.001 - 20.000 kr.        38
      Fleiri en 20.000 kr.        28
c) Staðfesting á upplýsingum um tiltekna eign:    
  Einingaverð fyrir staðfestingu á tilteknum upplýsingum um hverja eign kr.  88
d) Rafræn endurrit skjala:    
  Skjalalisti (listi yfir rafræn endurrit skjala í þinglýsingarhluta) kr.  66
  Gjald fyrir rafrænt endurrit skjals í þinglýsingarhluta kr. 277

9. gr.

Einingaverð úr verðskráningargrunnum.

Gjald fyrir upplýsingar um hverja fasteign úr verðskráningargrunnum Þjóðskrár Íslands:

Einingaverð úr kaupskrá kr. 110
Einingaverð úr leiguskrá kr. 110

10. gr.

Grunnupplýsingar úr staðfanga- og landeignahluta fasteignaskrár.

Grunnupplýsingar úr staðfangahluta fasteignaskrár eru án endurgjalds, en til grunnupplýsinga teljast hnitpunktar, heiti og auðkennisnúmer. Grunnupplýsingar úr landeignahluta fasteignaskrár eru án endurgjalds, en til grunnupplýsinga teljast landeignanúmer, skráð stærð, ef hún er til staðar, og hnitsett eignarmörk landeigna, ef þau eru til staðar.

IV. KAFLI

Gjald fyrir upplýsingar úr þjóðskrá.

11. gr.

Samsetning gjalds.

Auk gjalds fyrir aðgang að upplýsingum skv. 12. gr. skal greiða einingaverð og árgjald eftir því sem við á, sbr. 13. og 15. gr.

12. gr.

Aðgangur að upplýsingum úr þjóðskrá.

Greiða skal árgjald fyrir afhendingu upplýsinga úr þjóðskrá:

    Gjald fyrir starfsstöð  Gjald fyrir útibú
I. Grunnskrá þjóðskrár:    
  Grunnskrá kr.   97.600 kr.  24.800
  Grunnskrá með viðbótarupplýsingum A kr. 117.300 kr.  24.800
  Grunnskrá með viðbótarupplýsingum B kr. 195.100 kr.  24.800
II. Aðrar skrár þjóðskrár:  
  Horfinnaskrá 1 kr.   24.800 kr.  22.300
  Horfinnaskrá 2 kr.   37.100 kr.  22.300
  Horfinnaskrá 3 kr.   92.700 kr.  22.300
  Utangarðsskrá 1 kr.   12.400 kr.    6.300
  Utangarðsskrá 2 kr.   21.000 kr.    6.300

Grunngjald er greitt fyrir aðalstarfsstöð og auk þess útibúsgjald fyrir hverja starfsstöð sé notandi með fleiri starfsstöðvar. Aðili sem er með rekstur innan skilgreindrar starfsstöðvar á annarri kenni­tölu en þeirrar starfsstöðvar skal greiða útibúsgjald.

13. gr.

Aðgangur að upplýsingum úr þjóðskrá í vefþjónustu eða uppflettikerfum.

Gjald fyrir aðgang að upplýsingum úr þjóðskrá í lokuðu uppflettikerfi, vefþjónustu, vefgátt eða sam­bæri­legu viðmóti er sem hér segir:

Einingaverð er samkvæmt 15. gr.    
Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 3.500
Stofngjald vefþjónustu kr. 58.500

14. gr.

Úrtök úr þjóðskrá.

Vinnsla úrtaks úr þjóðskrá er háð leyfi Þjóðskrár Íslands. Gjald fyrir rafræn afnot af nafnaskrá þjóð­skrár til vinnslu úrtaksgagna og til póstdreifingar er sem hér segir:

Einingaverð eru samkvæmt 15. gr.    
Upphafsgjald (innifalið allt að 500 nöfn) kr. 9.200
Stofngjald vefþjónustu kr. 58.500

Afsláttur er veittur eftir stærð úrtaks og reiknast þegar tiltekinni stærð úrtaks er náð, sbr. eftir­farandi töflu, en ekki er greitt einingaverð fyrir fleiri en 100.000 einstaklinga:

      Upphafsgjald Grunnskrá Viðbót A
Upphafsgjald (innifalið allt að 500 nöfn) kr. 9.200    
Einingaverð 501 - 10.000      kr.   8,0  kr.  12,0
Einingaverð 10.001 - 30.000      kr.   4,4  kr.    6,6
Einingaverð 30.001 - 50.000      kr.   3,6  kr.    5,4
Einingaverð 50.001 - 100.000      kr.   2,8  kr.    4,2

15. gr.

Einingaverð fyrir upplýsingar.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr þjóðskrá er sem hér segir:

Einingaverð fyrir upplýsingar úr grunnskrá kr. 8
Einingaverð fyrir upplýsingar úr grunnskrá ásamt viðbótarupplýsingum A kr. 12
Einingaverð fyrir upplýsingar úr grunnskrá ásamt viðbótarupplýsingum B kr. 16

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

16. gr.

Sérvinnslur.

Gjald fyrir sérvinnslur úr skrám Þjóðskrár Íslands er sem hér segir:

Einingaverð upplýsinga úr fasteignaskrá samkvæmt III. kafla.    
Einingaverð upplýsinga úr þjóðskrá samkvæmt IV. kafla.    
Byrjunargjald sérvinnslu (innifalið 2 klst. vinna sérfræðings) kr. 34.500
Vinna umfram 2 klst. er greidd samkvæmt 17. gr.    

Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum skal gera um það skriflegan samning við stofnunina þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir en greitt er fyrir hverja afhendingu:

Fjöldi afhendinga á almanaksári Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar
1 afhending á ári 100% gjald fyrir 1. afhendingu
2 - 4 afhendingar á ári 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2.-4. afhendingu
Fleiri en 5 afhendingar 50% afsláttur af gjaldi fyrir afhendingar umfram 5

17. gr.

Tímavinna.

Tímagjald almenns starfsmanns pr. klst. kr. 8.000
Tímagjald sérfræðings pr. klst. kr. 11.700

18. gr.

Vottorð, uppfletting og ljósrit.

Gjald fyrir vottorð, uppflettingu í skrám, ljósrit o.fl. er sem hér segir:

Einföld vottorð úr þjóðskrá kr.  1.120 
Ítarleg vottorð úr þjóðskrá kr.  2.240 
Stök uppfletting í þjóðskrá kr.  650 
Vottorð úr fasteignaskrá kr.  670 
Ljósrit pr. bls. kr.  20 
Staðfest ljósrit úr skrám kr.  640 
Eignastöðuvottorð:    
Fyrir hverja kennitölu kr.  2.600 
Viðbótargjald fyrir hverja færslu kr.  44 
Rafræn afhending vottorða:    
A) Eignastöðuvottorð:    
  Fyrir hverja kennitölu kr.  630 
  Viðbótargjald fyrir hverja færslu kr.  44 
B) Stimpilgjald skjala vegna fasteigna í byggingu:    
  Vottorð fyrir áætlað fasteignamat fyrir fasteignir í byggingu kr.  670 
  Vottorð sem krefjast sérvinnslu: Tímagjald samkvæmt 16. og 17. gr.    

19. gr.

Skilríki.

Nafnskírteini kr.  4.000 

20. gr.

Miðlun upplýsinga úr skrám Þjóðskrár Íslands.

Miðlun upplýsinga úr skrám Þjóðskrár Íslands er óheimil nema fyrir liggi samningur um miðlun. Með miðlun upplýsinga er átt við miðlun til þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt III. og IV. kafla eftir því sem við á.

Árgjald miðlara kr.  333.800 

21. gr.

Undanþágur frá gjaldskrá.

Þjóðskrá Íslands er heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:

  a) Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms.
  b) Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagn­kvæmum upplýsingasamskiptum.
  c) Fjölmiðlum ef upplýsingar varða heildarfjölda eða summutölur úr skrám.
  d) Skráningaraðilum sem annast skráningu í skrár Þjóðskrár Íslands.

22. gr.

Lagaheimild og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 24. gr. laga, nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum, 6. mgr. 1. gr. laga, nr. 25/1965, um útgáfu og notkun nafnskírteina, með síðari breytingum, 3. mgr. 19. gr. laga nr. 54/1962, um þjóðskrá og almannaskráningu, með síðari breytingum og 3. mgr. bráðabirgðaákvæðis V við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1146/2012 um sama efni.

Innanríkisráðuneytinu, 10. febrúar 2016.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2016