Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 607/2023

Nr. 607/2023 5. júní 2023

REGLUGERÐ
um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför á grundvelli laga um útlendinga.

1. gr.

Gildissvið.

Þegar útlendingur sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hefur dregið umsókn sína til baka, fengið synjun um vernd eða synjun á efnislegri meðferð og ákvörðun hefur verið tekin um aðstoð til sjálf­viljugrar heimfarar, eftir atvikum í samstarfi við alþjóðastofnun, er heimilt að greiða viðkomandi flugfargjöld, ferðastyrk og/eða enduraðlögunarstyrk. Útlendingar sem koma frá ríkjum sem eru á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki, eða fá aðstoð við heimför til ríkja sem eru á þeim lista eiga þó ekki rétt á enduraðlögunarstyrk.

Útlendingur á eingöngu rétt á styrk samkvæmt reglugerð þessari einu sinni.

 

2. gr.

Skilgreiningar.

Með greiðslu flugfargjalda er átt við greiðslu fyrir flugmiða frá Íslandi til heima- eða viðtöku­ríkis.

Með greiðslu ferðastyrks er átt við reiðufé sem ætlað er til kaupa á nauðsynjum meðan á ferða­lagi stendur.

Með greiðslu enduraðlögunarstyrks er átt við styrk sem stuðla á að árangursríkri enduraðlögun viðkomandi í heima- eða viðtökuríki og styðja hann við að koma þar undir sig fótunum á nýjan leik. Styrkurinn er almennt greiddur út í því ríki og getur t.d. nýst í húsaleigu, nám, atvinnu eða önnur verkefni í samstarfi við alþjóðastofnun.

 

3. gr.

Fjárhæðir styrkja.

Styrkir greiðast í samræmi við eftirfarandi töflu.

Ríki Flokkur Ferðastyrkur Enduraðlögunar­styrkur Viðbótarstyrkur
 ef sótt er um áður en frestur til heimfarar er liðinn, allt að
A  Fullorðinn 200 evrur 3.000 evrur 1.000 evrur 
 Barn 100 evrur 1.500 evrur   500 evrur
 Fylgdarlaust barn 200 evrur 2.000 evrur   500 evrur
B  Fullorðinn 200 evrur 2.000 evrur   500 evrur
 Barn 100 evrur 1.000 evrur   500 evrur
 Fylgdarlaust barn 200 evrur 2.000 evrur   500 evrur

 

Fjárhæð enduraðlögunarstyrkja fer eftir því hvort heima- eða viðtökuríki sé skilgreint í flokki A eða B og tekur mið af því á hvaða stigi ósk um aðstoð til heimfarar er borin fram.

Útlendingastofnun ber að halda utan um lista þar sem ríki eru flokkuð, uppfæra hann eftir því sem þörf er á og birta á vef stofnunarinnar. Við mat á því í hvorum flokki ríki skuli vera getur stofnunin meðal annars litið til þess hversu erfiðlega hafi gengið að flytja útlendinga til viðkomandi ríkis, kostnað við að komast til ríkisins og setjast þar aftur að og vergrar landsframleiðslu í ríkinu.

Kjósi útlendingur ekki að nýta styrkinn í sérstök enduraðlögunarverkefni getur hann, með samþykki viðeigandi alþjóðastofnunar, fengið hluta styrksins greiddan í reiðufé. Þó er ekki heimilt að afhenda hærri fjárhæð í reiðufé en sem nemur helmingi af upphæðinni eins og nánar greinir í töflu. Í undantekningartilvikum er þó heimilt að greiða enduraðlögunarstyrk að fullu í formi reiðufjár þegar sérstakar aðstæður eru til staðar í heima- eða viðtökuríki, t.d. þegar þar ríkir óðaverðbólga eða samstarfsaðilar íslenskra stjórnvalda eru ekki með starfsemi í ríkinu.

 

4. gr.

Undanþágur.

Heimilt er að veita útlendingi, sem er staddur hér á landi við gildistöku reglugerðarinnar, viðbótar­styrk samkvæmt töflu í 3. gr. þrátt fyrir að frestur hans til sjálfviljugrar heimfarar sé liðinn óski hann eftir því innan 60 daga frá því að reglugerðin öðlaðist gildi.

Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að veita ferða og/eða enduraðlögunarstyrk þótt um sé að ræða umsækjanda sem á ekki rétt á styrk skv. 1. gr. Þetta á þó ekki við ef viðkomandi hefur hlotið alþjóðlega vernd í Schengen-ríki. Slíkur styrkur kæmi einkum til skoðunar í tilvikum barna­fjölskyldna þar sem allir fjölskyldumeðlimir hafa óskað eftir styrk. Það sama getur átt við um útlend­inga sem taldir eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu að mati viðeigandi stjórnvalds eða ef viðeigandi stjórnvald telur umsækjanda af öðrum ástæðum hafa þörf fyrir sérstaka aðstoð í tengslum við flutning. Við mat á því hvort umsækjandi eigi rétt á styrk skal m.a. höfð hliðsjón af heilsufari og félagslegri stöðu umsækj­anda.

 

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um endur­aðlögunar­styrk og ferðastyrk til umsækjanda um alþjóðlega vernd, nr. 961/2018, með síðari breyt­ingum.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 5. júní 2023.

 

Jón Gunnarsson.

Bryndís Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. júní 2023