Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1086/2016

Nr. 1086/2016 23. nóvember 2016

AUGLÝSING
um gildistöku meginreglna í hagskýrslugerð.

Á grundvelli Evrópureglugerðar nr. 223/2009, um evrópskar hagskýrslur, sem tekið hefur gildi hér á landi í samræmi við EES-samninginn, gilda eftirfarandi meginreglur um opinbera hagskýrslugerð hér landi. Reglurnar eru ætlaðar stjórnvöldum ESB og aðildarríkja þess og hagskýrsluyfirvöldum, þ.e. Hagstofu ESB (Eurostat), hagstofum einstakra ríkja og öðrum sem hafa með höndum opinbera hagskýrslugerð í aðildarríkjum ESB.

Hagstofa Íslands tekur ásamt öðrum hagstofum EFTA-ríkjanna fullan þátt í evrópska hagskýrslu­samstarfinu á grundvelli EES-samningsins. Reglugerð nr. 223/2009 hefur verið tekin upp í EES-samninginn og birt hér á landi en í því felst að mælst er til að meginreglurnar gildi fyrir íslensk stjórnvöld, Hagstofu Íslands og fyrir aðrar opinberar stofnanir sem fást við opinbera hagskýrslugerð hér á landi eins og hún er skilgreind í reglugerð nr. 223/2009.

Meginreglurnar, sem birtar eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, öðlast þegar gildi og skal beita við opinbera hagskýrslugerð hér á landi, sbr. lög um Hagstofu Íslands nr. 163/2007. Frá sama tíma fellur niður auglýsing nr. 578/2006, um gildistöku verklagsreglna í hagskýrslugerð.

Forsætisráðuneytinu, 23. nóvember 2016.

F. h. r.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.

Sigrún Ólafsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 8. desember 2016