Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 198/2017

Nr. 198/2017 15. febrúar 2017

SAMÞYKKT
um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og þjónustugjöld byggingarfulltrúa á Fljótsdalshéraði.

1. gr.

Gjöld samkvæmt samþykkt þessari.

Lóðarhafar og framkvæmdaaðilar innan Fljótsdalshéraðs greiða til sveitarfélagsins eftirtalin gjöld samkvæmt samþykkt þessari:

  1. Gatnagerðargjald.
  2. Byggingarleyfisgjald.
  3. Afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála.
  4. Framkvæmdaleyfisgjöld.
  5. Gjöld vegna vinnu eða breytinga á skipulagsáætlunum.

2. gr.

Gatnagerðargjald.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli á Fljótsdalshéraði, samkvæmt samþykktu deili­skipulagi eða staðfestu aðalskipulagi, skal greiða gatnagerðargjald samkvæmt samþykkt þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatna­mannvirkja. Gjaldinu skal þannig m.a. varið til að undirbyggja götur með tilheyrandi lögnum, m.a. vegna götulýsingar og til að leggja bundið slitlag, gangstéttar, umferðareyjar og þess háttar þar sem gert er ráð fyrir því í skipulagi.

Stofngjöld fráveitu og vatnsveitu og byggingarleyfisgjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.

3. gr.

Gjaldstofn gatnagerðargjalds og tímamark álagningar.

Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækk­unar á eldra húsnæði.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi. þó skal aldrei miða álagninguna við hærra nýtingarhlutfall en 0,4 fyrir einbýlishús.
  2. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu bygg­ingar­leyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingar­leyfi tekur til. Gildir þá jafnframt:
    1. Gatnagerðargjald skal innheimt vegna stækkunar byggingar sem nemur fermetra­fjölda stækkunar.
    2. Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er byggingarleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi er gefið fyrir niðurrifi byggingar. Að öðrum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald.
    3. Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun hús­næðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 4. gr. skal greiða gatna­gerðar­gjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða bygg­ingar­leyfis­hafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

Hafi gatnagerðargjald verið lagt á í samræmi við a-lið greinarinnar, skal ekki greitt af viðbyggingu, nema að því leyti sem viðbygging felur í sér hærra nýtingarhlutfall en fyrri álagning byggði á, þó ekki í tilvikum þar sem hámark skv. 1. mgr. 4. gr. um einbýlishúsalóðir á við.

4. gr.

Útreikningur gatnagerðargjalds.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. a-lið 3. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá fermetrafjölda skv. tilgreindu hámarksnýtingarhlutfalli lóðar, sbr. 3. gr. Sé þess óskað að byggja meira en nýtingarhlutfall lóðar segir til um skal greiða gatnagerðargjald miðað við það nýtingarhlutfall. Um einbýlishúsalóðir gildir þó alltaf, að aldrei skuli miða álagningu við hærra nýtingarhlutfall en 0,4.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. b-lið 3. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá raunfjölda fermetra byggingar, hvort sem um er að ræða viðbyggingu, endurbyggingu, breytingu notkunar eða önnur tilvik.

Af hverjum fermetra skal greiða ákveðinn hundraðshluta byggingarkostnaðar pr. fermetra vísi­tölu­húss fjölbýlis eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grund­velli laga nr. 42/1987 um vísitölu byggingarkostnaðar. Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:

  Einbýlishús með eða án bílageymslu 6,50%
  Par-, rað- og keðjuhús, með eða án bílageymslu 6,00%
  Fjölbýlishús með eða án bílageymslu 4,00%
  Verslunar, skrifstofu - og þjónustuhúsnæði 5,20%
  Iðnaðar- og geymsluhúsnæði 4,50%
  Aðrar byggingar 3,00%
  Geymslulóðir á iðnaðar- og athafnasvæðum 2,25%

Þegar byggingarleyfi á geymslulóð er gefið út skal greiða gatnagerðargjald eins og um iðnaðar- og geymsluhúsnæði sé að ræða að frádregnu áður greiddu gjaldi, framreiknuðu miðað við bygg­ingar­vísitölu.

Fjárhæðir taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitölu­hússins (nú 203.508 kr./m², byggingarvísitala grunnur 2010, 130,2 stig í janúar 2017).

5. gr.

Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Óeinangruð hús, minni en 15 fermetrar.
  2. Óupphituð svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 fermetrar eða minni.

6. gr.

Sérstök lækkunarheimild gatnagerðargjalds.

Sveitarstjórn er heimilt skv. 6. gr. laga nr. 153/2006 að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður.

7. gr.

Gjalddagar og greiðsluskilmálar.

Gjalddagi 50% gatnagerðargjalds er við lóðarveitingu og gjalddagi eftirstöðva þegar byggingarleyfi er veitt, þó eigi síðar en 6 mánuðum frá lóðarúthlutun. Hafi gjöldin eigi verið greidd innan ofan­greinds frests, fellur úthlutun lóðarinnar úr gildi. Gjalddagi gatnagerðargjalds í öðrum tilvikum en við úthlutun lóðar miðast við útgáfu byggingarleyfis.

Umsækjandi lóðar, sem fengið hefur sömu lóð úthlutað án þess að greiða innan mánaðar gatna­gerðargjald, fær ekki úthlutað lóðinni í þriðja sinn, nema fyrir liggi greiðsla gatnagerðargjalds.

Eindagi gjalda skv. samþykkt þessari er 30 dögum eftir gjalddaga.

8. gr.

Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

9. gr.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:

  1. Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð eða fellur niður, sbr. reglur sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
  2. Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 90 daga, vegna endurgreiðslu skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.

Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006, sbr. breyt­ingar­lög nr. 6/2009.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds vegna lóða sem úthlutað var eða byggingarleyfi veitt á, fyrir gildis­töku laga nr. 6/2009 þann 4. mars 2009, skal verðbætt miðað við vísitölu neysluverðs frá greiðslu­degi til endurgreiðsludags.

10. gr.

Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Fljótsdalshérað fyrir gildistöku samþykktar þessarar, svo og skilmálar varðandi gatna­gerðar­gjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undir­gengist, fer eftir þágildandi gjaldskrám.

11. gr.

Byggingarleyfisgjald.

Innheimta skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir.

Byggingarleyfisgjald er grunngjald, að viðbættu gjaldi pr. m³ byggingar. Þó skal ekki innheimta byggingarleyfisgjald fyrir byggingar sem eru 7 m² eða minni, nema um viðbyggingar sé að ræða.

Innifalið í byggingarleyfisgjaldi er lögboðin meðferð byggingarleyfiserinda, lóðarblöð, yfirferð teikn­inga, útmæling fyrir húsi og hæðarkóta og reglubundið eftirlit, eftir því sem við á.

Byggingarleyfisgjald samkvæmt eftirfarandi töflu er innheimt við útgáfu byggingarleyfis:

  Tegund byggingar/framkvæmdar Grunngjald,
kr.
m³-gjald,
kr.
Athugasemdir
A Íbúðarhúsnæði og aðrar byggingar á íbúðarlóðum í þéttbýli og í dreifbýli stærri en 10 m² 42.146 308  
B Byggingar á athafnasvæðum og iðnaðarsvæðum og hafnarsvæðum 86.280 181  
C Byggingar á verslunarsvæðum og miðsvæðum 124.808 308 Rúmmetragjald pr. m³ upp að 1.000 m³
D Byggingar á svæðum fyrir opinberar stofnanir 124.808 308 Rúmmetragjald pr. m³ upp að 1.000 m³
E Byggingar á svæðum fyrir frístundahús 9.586 57  
F Byggingar á landbúnaðarsvæðum, aðrar en íbúðarhús og hús til gistireksturs 9.586 57 Rúmmetragjald pr. m³ upp að 1.000 m³
G Byggingarleyfi vegna sólpalla, loftneta, girðinga, minni háttar breytingar á húsnæði o.þ.h. 9.586 0  
H Gjald vegna leyfisskylds niðurrifs mannvirkja 19.173 0  
I Endurnýjun byggingarleyfis (óbreytt endurnýjun) 19.173    

12. gr.

Afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála.

Gjalddagi afgreiðslu- og þjónustugjalda vegna mannvirkjamála miðast við útgáfu viðkomandi vottorða og ákveðst samhliða því að önnur þjónusta er veitt.

  Tegund þjónustu Gjald, kr. Athugasemdir
1 Eftirlit, úttekt og skráning vegna lausafjármuna í óleyfi 27.335 Eftirlit, úttekt og skráning byggingarfulltrúa vegna geymslu lausafjármuna sbr. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012
1.1 Útgáfa stöðuleyfis 32.735 Útgáfa stöðuleyfis sbr. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, í allt að 12 mánuði
2 Lóðarúthlutunargjald 38.347 Greiðist við úthlutun lóðar og er óendurkræft, þó úthlutun gangi til baka
3 Fokheldisvottorð 15.374  
4 Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt 22.972  
5 Lokavottorð og lokaúttekt 28.942 Krónur 28.942 fyrir hús á svæðum fyrir verslun og þjónustu, opinberar byggingar, iðnað og athafnasvæði. 50% lægra gjald fyrir aðrar byggingar
6 Eignaskiptayfirlýsingar – samþykkt og skráning 9.585  
6.1 Eignaskiptayfirlýsing – yfirferð   Aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
7 Vottorð vegna vínveitingaleyfa 22.972  
8 Endurskoðun aðaluppdrátta 15.374  
9 Gerð stofnskjals vegna lóða 9.585 Þegar hús er fokhelt. Við bætist þinglýsingarkostnaður vegna lóðarleigusamninga og stofnskjala
10 Aukaúttekt byggingarfulltrúa 7.778  
11 Úttekt vegna útleigu húsnæðis 43.202 Almennum leigumarkaði / til sölu gistingar
12 Skannaðar teikningar og ljósritaðar teikningar, stærri en A4 blöð 500 Á einnig við um teikningar sem sendar eru rafrænt
13 Skönnun/prentun vottorða, staðfestinga og annarra slíkra skjala í A4 / A3 500 Á blaðsíðu

13. gr.

Framkvæmdaleyfisgjöld.

Innheimta skal framkvæmdaleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem framkvæmdaleyfi er gefið út fyrir. Gjaldið má ekki nema hærri upphæð en nemur kostnaði við undirbúning og útgáfu leyfisins og eftirlitið, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu.

Framkvæmdaleyfisgjald samkvæmt eftirfarandi töflu eru innheimt við útgáfu framkvæmdaleyfis. Gjalddagi eftirlitsgjalds er í kjölfar eftirlits:

 

Tegund þjónustu

Gjald, kr. Athugasemdir
16 Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis    
16.1 Afgreiðslugjald 3.273  
16.2 Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðmiðunargjald 109.116  
16.3 Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald 54.558  
16.4 Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 15.912 Tímagjald aðkeypt vinna, skv. reikningi byggingarfulltrúa og/eða aðkeypt vinna, skv. reikningi

14. gr.

Gjöld vegna vinnu eða breytinga á skipulagsáætlunum.

Sé þörf á að vinna skipulagsáætlun eða gera breytingu á henni vegna leyfisskyldra framkvæmda getur sveitarstjórn innheimt gjald fyrir skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar framkvæmdar, samkvæmt eftirfarandi töflu. Gjaldið skal ekki nema hærri upphæð en nemur kostnaði við skipulagsgerðina og kynningu og auglýsingu skipulagsáætlunar og eru einstakir gjaldaliðir því settir fram til viðmiðunar.

Gjalddagi gjalda vegna skipulagsáætlana miðast við það þegar vinna fer fram og/eða kostnaður fellur til. Gjöld skulu innheimt samkvæmt sérstökum innheimtuseðlum.

  Tegund þjónustu Gjald, kr. Athugasemdir
13 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:    
13.1 Afgreiðslugjald 5.456  
13.2 Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga,viðmiðunargjald 136.395 Viðmiðunargjald.
13.3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga 130.939  
13.4 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga 76.381  
14 Kostnaður vegna deiliskipulags:    
14.1 Afgreiðslugjald 5.456  
14.2 Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
14.3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga 130.939  
14.4 Veruleg breyting á deiliskipulags­uppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
14.5 Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 76.381  
14.6 Óveruleg breyting á deiliskipulags­uppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
14.7 Umsýslu- og auglýsinga­kostnaður vegna óverulegra breytinga sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 54.558  
14.8 Grenndarkynning vegna breytingar á deiliskipulagsuppdrætti 27.279  
15 Kostnaður vegna grenndarkynningar:    
15.1 Grenndarkynning 27.279  

15. gr.

Ýmis ákvæði.

Öll gjöld önnur en gatnagerðargjald samkvæmt samþykkt þessari eru miðuð við vísitölu bygg­ingar­kostnaðar í júní 2015 (grunnur 2015, 123,2 stig). Endurreikna skal gjöldin í upphafi hvers almanaks­árs, á grundvelli vísitölu byggingarkostnaðar í janúar og gilda til loka viðkomandi árs.

Upphæð gjalda samkvæmt 11. og 12. gr. skal taka mið af kostnaði við þjónustu og einstök verkefni og skal byggð á rekstraráætlun þar sem rökstudd eru þau atriði sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður.

Öll gjöld samkvæmt samþykkt þessari eru ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði, tryggð með lög­veðs­rétti í viðkomandi fasteign og eru aðfararhæf samkvæmt 10. tl. 1. mgr. laga um aðför nr 90/1989. Framkvæmdaleyfisgjöld og gjöld vegna skipulagsvinnu njóta þó ekki lögveðsréttar. Séu gjöld ekki greidd á eindaga skulu reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Kostnaður lóðarhafa vegna lóðar sem er skilað eða byggingarleyfi afturkallað af, vegna atriða er varða lóðarhafa, svo sem hönnunar- og rannsóknakostnaður á lóðinni eða framkvæmdir unnar samkvæmt graftrarleyfi áður en byggingarleyfi er gefið út, er ekki endurgreiddur af sveitarfélaginu. Staða lóðarhafa fer þá eftir gildandi verklagsreglum vegna lóðaskila eða öðrum ákvörðunum bæjar­stjórnar.

Sé lóð afturkölluð eða byggingarleyfi fellt úr gildi eftir að undirstöður eru fullgerðar, eða á síðari stigum byggingarframkvæmda, skal dómkveðja tvo matsmenn til að verðleggja þær framkvæmdir sem unnar hafa verið, enda hafi þær verið teknar út og viðurkenndar af byggingarfulltrúa. Kostnað vegna matsins greiða sveitarfélagið og lóðarhafi að jöfnu. Fljótsdalshérað skal leysa til sín lóðina með mannvirkjum á grundvelli mats hinna dómkvöddu matsmanna að frádreginni hlutdeild lóðar­hafa í kostnaði vegna matsgerðarinnar.

16. gr.

Heimildarákvæði.

Bæjarstjórn er heimilt að undanþiggja einstök hverfi, götur eða landsvæði ákvæðum 3. gr. að öllu leyti, ef um er að ræða að sveitarfélagið semji við einn og sama framkvæmdaraðila að taka að sér að byggja öll mannvirki á svæðinu og ganga að fullu frá götum, bifreiðastæðum, opnum svæðum o.s.frv. Í slíkum tilfellum skal framkvæmdaraðili greiða sveitarsjóði sem nemur að minnsta kosti 15% af útreiknuðu samanlögðu gatnagerðargjaldi til að standa straum af kostnaði við tengigötur. Bæjarsjóður skal eftir sem áður yfirtaka til rekstrar þær götur sem byggðar eru með framan­greindum hætti.

17. gr.

Samþykkt og gildistaka.

Gatnagerðargjald byggir á lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatna­gerðar­gjald nr. 543/1996.

Byggingarleyfisgjald og afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála byggja á 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Gjöld vegna framkvæmdaleyfa og vinnu við skipulagsáætlanir byggja á skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. 20. gr. laganna, sjá einnig 18. gr., sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna.

Samþykkt þessi öðlast gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur þá úr gildi eldri samþykkt Fljótsdalshéraðs um sama efni, nr. 668/2015. Þó gildir vegna gatna­gerðar­gjalds, sem lagt hefur verið á fyrir gildistöku samþykktar þessarar en hefur ekki verið greitt að fullu, að farið skal eftir ákvæðum þeirrar samþykktar sem álagning gatnagerðargjalds byggði á.

Samþykkt af bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs, 15. febrúar 2017.

Vífill Björnsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 10. mars 2017