Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1068/2019

Nr. 1068/2019 27. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 772/2012, um framkvæmdaleyfi.

1. gr.

3. málsl. 2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Þá skal leyfisveitandi leggja álit Skipulags­stofn­unar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar til grundvallar.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. nóvember 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2019