Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 162/2024

Nr. 162/2024 29. janúar 2024

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 8. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/334 frá 19. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd með samþykkta eftirlitsáætlun og sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af til­teknum lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsnigl­um og lagarafurðum til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 8/2024.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008 um fiskeldi.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. janúar 2024.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2024