Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1036/2020

Nr. 1036/2020 22. október 2020

AUGLÝSING
um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sbr. 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, sbr. f-lið 1. mgr. 109. gr. sömu laga, skal vera 4.500 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

2. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota, sbr. a-e-liði 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, að undanskildum a-lið 2. mgr. 29. gr. sömu laga, sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. sömu laga, skal vera 10.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

3. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna a-liðar 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. umferðar­laga nr. 77/2019 (bílastæði fatlaðra) skal vera 20.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

4. gr.

Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.

 

5. gr.

Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til staðgreiðsluafsláttar og undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga, sbr. 6. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

 

6. gr.

Auglýsing þessi, sem borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 15. október 2020, staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með síðari breytingum, sbr. reglur um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1988, sbr. breytingu á þeim reglum, nr. 226/2004, öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Reykjavíkurborg nr. 798/2012.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. október 2020.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Sæmundsson.


B deild - Útgáfud.: 26. október 2020