Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1517/2021

Nr. 1517/2021 7. desember 2021

GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Norðurþings.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs Norðurþings ákvarðast annars vegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hins vegar af skilgreiningu á þjónustustigi liðsins ákveðnu af sveitarstjórn Norðurþings.

 

2. gr.

Slökkvilið Norðurþings innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostn­aðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

 

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almanna­hagsmunum og/eða fellur að markmiðum og skilgreiningu á þjónustu liðsins.

 

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 10.758 kr.

 

5. gr.

Öryggisvaktir á mannvirki.

Allur kostnaður sem til kann að falla vegna öryggisvakta, skal greiddur af eiganda eða forráða­manni viðkomandi fasteignar. Slökkviliðsstjóri skal gefa viðkomandi aðilum hæfilegan frest til úrbóta og tilkynna honum það með sannanlegum hætti áður en gripið verður til frekari aðgerða.

Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eld­vörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimt er að lágmarki 43.032 kr., fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr., sbr. 2. tl. 2. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

 

6. gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mann­virki. Innheimt er 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 43.032 kr., auk 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 31. gr. laga um brunavarnir.

 

7. gr.

Dagsektir.

Ef ekki er brugðist við kröfu slökkviliðsstjóra um úrbætur, innan þess frests sem gefinn hefur verið, er slökkviliðsstjóra heimilt að leggja á dagsektir, enda hafi verið varað við álagningu þeirra þegar frestur var gefinn. Dagsektir renna til viðkomandi sveitarsjóðs og skal hámark þeirra vera 500.000 kr. á dag. Dagsektir má innheimta með fjárnámi. Innheimt er 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 31. gr. laga um brunavarnir.

 

8. gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar, að lágmarki 21.516 kr., vegna hverrar úttektar. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

 

9. gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir fyrstu skoðun og gerð kröfugerðar skal ekkert innheimt. Við aðra skoðun og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund hafi kröfugerð verið uppfyllt. Hafi kröfugerð ekki verið uppfyllt skal innheimta að auki 43.032 kr., Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 43.032 kr., auk 10.758 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

10. gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð. Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 10.708 kr., fyrir eftirlitið á daglegum vinnutíma. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfs­manns eru innheimtar 43.032 kr., Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvar­legra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 9. gr. þessarar gjald­skrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

11. gr.

Umsagnir.

Umsagnir slökkviliðsstjóra til einkaaðila eða annarra stjórnvalda eru ekki tilgreindar í lögum um brunavarnir. Umsagnir til annarra stjórnvalda eru þó eftir atvikum áskildar í lögum um aðra mála­flokka og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Innheimt er fast gjald, 10.758 kr., fyrir hverja umsögn. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 43.032 kr., auk 10.758 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

12. gr.

Slökkviliðið sinnir einnig verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þau verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa í sveitarfélaginu séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfs­manns er 10.758 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tíma­gjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 14.523 kr., nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 116.187 kr.

 

13. gr.

Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunar-óhöppum á sjó og í lofti falla ekki undir lögin. Lögin ná því til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri. Lögin taka ekki til eldvarna í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 116.187 kr., auk 14.523 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

14. gr.

Viðbúnaður vegna upphreinsunar.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á meng­unar­óhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 116.187 kr., auk 14.523 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

15. gr.

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 116.187 kr., auk 14.523 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

16. gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um bruna­varnir nr. 75/2000 með síðari breytingum, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjald­skyld. Skal slökkviliðsstjóri upplýsa eiganda eða forráðamenn viðkomandi fasteignar um gjald­töku, komi til hennar, áður en eiginleg vinna fer fram og gera jafnframt grein fyrir hvert gjaldið er.

Innheimtar eru 14.523 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

17. gr.

Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki áskilin í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu- eða körfubíla, t.d. vegna einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagn­ingu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki Slökkviliðs Norðurþings skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimt er að lágmarki 58.093 kr., fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 14.523 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.

 

18. gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í lögreglusamþykktum og veitir lögreglustjóri ekki heimild til flutnings nema í fylgd slökkviliðs. Innheimt er að lágmarki 58.093 kr., fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 14.523 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

 

19. gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við skilgreint hlutverk liðsins. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lág­marki 58.093 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 14.523 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

 

IV. KAFLI

Innheimta.

20. gr.

Slökkvilið Norðurþings annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtu­fyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta, sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. til og með 10. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum.

 

V. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

21. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í lögum nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglu­gerðum settum samkvæmt þeim, er samin af slökkviliðsstjóra og samþykkt af sveitarstjórn Norður­þings með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 með síðari breytingum. Gjald­skráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 117/2021.

 

F.h. Slökkviliðs Norðurþings 7. desember 2021,

 

Grímur Kárason slökkviliðsstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2021