1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga hvað varðar:
- Viðmiðin sem tilgreina hvenær starfsemi telst vera viðbót við aðalstarfsemi, skv. a-lið 2. mgr. 10. lið 1. mgr. 2. gr. laganna.
- Tæmandi lista yfir upplýsingar sem fyrirhugaðir eigendur láta fylgja með í tilkynningu um fyrirhuguð kaup á virkum eignarhlut í verðbréfafyrirtæki, skv. 12. gr. laganna.
- Skipulagskröfur verðbréfafyrirtækja sem leggja stund á viðskipti með notkun algríms, skv. 25. og 27. gr. laganna.
- Starfsleyfi og aukið starfsleyfi verðbréfafyrirtækja skv. I. kafla 2. þáttar laganna.
- Samráð við lögbær yfirvöld í öðrum aðildarríkjum áður en starfsleyfi er veitt, skv. 140. gr. laganna.
- Tilkynningar verðbréfafyrirtækja utan EES um starfsemi, skv. 46. gr. MiFIR.
2. gr.
Tilvísanir.
Áætlun um viðskiptavakt: Tilvísanir í reglum þessum til áætlunar um viðskiptavakt skv. 17. og 48. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til áætlunar um viðskiptavakt skv. 26. og 84. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Farm- og hrávöruafleiður skv. 10. lið bálks C í I. viðauka MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til afleiða skv. 10. lið bálks C í I. viðauka við tilskipun 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til afleiða skv. g-lið 2. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Heildarhlítni við 17. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til heildarhlítni við 17. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til hlítni við 25.- 27. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Kröfur skv. 5. mgr. 17. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til krafna í samræmi við 5. mgr. 17. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til hlítni við 27. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Lögbært yfirvald: Seðlabanki Íslands er lögbært yfirvald skv. 33. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021.
Peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka: Tilvísanir til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka, í skilningi 1. gr. tilskipunar 2005/60/EB skal skilja sem tilvísun til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka skv. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Pöruð miðlaraviðskipti: Tilvísanir í reglum þessum til paraðra miðlaraviðskipta (e. matched principal basis), sbr. 38. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB, skal skilja sem tilvísun til jafnaðra eigin viðskipta skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Samráð skv. 84. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til samráðs skv. 84. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til samráðs áður en starfsleyfi er veitt skv. 140. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Samningur skv. 6. mgr. 17. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til samnings sem um getur í 6. mgr. 17. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til samnings skv. 25. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Starfsleyfi fyrir eignastýringu: Tilvísanir í reglum þessum til starfsleyfis til að veita fjárfestingarþjónustuna „eignastýring“, sem um getur í 4. tölulið þáttar A í I. viðauka við tilskipun 2004/39/EB skal skilja sem tilvísanir til eignastýringar skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Starfsleyfi skv. CRD IV: Tilvísanir í reglum þessum til starfsleyfis í samræmi við tilskipun 2013/36/ESB skal skilja sem tilvísanir til starfsleyfis skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Starfsleyfi skv. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til starfsleyfis í samræmi við tilskipun 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til starfsleyfis skv. lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
II. bálkur MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til II. bálks tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til 2. þáttar laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Tímafrestur skv. 3. mgr. 7. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til tímafrests sem settur er fram í 3. mgr. 7. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til tímafrests skv. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálafyrirtæki.
Varfærniskröfur skv. tilskipunum 2002/87/ESB og 2013/36/ESB: Tilvísanir í reglum þessum til varfærniskrafna skv. tilskipunum 2002/87/EB og 2013/36/ESB skal skilja sem tilvísanir til varfærniskrafna samkvæmt lögum nr. 61/2017 um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum og lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Verðbréfafyrirtæki skv. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til verðbréfafyrirtækis samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til verðbréfafyrirtækis samkvæmt lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Viðbótarstarfsemi skv. i. og ii. undirliðum j-liðar 1. mgr. 2. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til viðbótarstarfsemi skv. i. og ii. undirliðum j-liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2014/65/ESB, skal skilja sem tilvísanir til starfsemi skv. a- og b-liðum 1. mgr. 10. liðar 1. mgr. 2. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Viðskipti fyrir eigin reikning eða sölutrygging: Tilvísanir í reglum þessum til starfsemi sem felur í sér „viðskipti fyrir eigin reikning“ eða „sölutryggingu í tengslum við útgáfu fjármálagerninga og/eða útboð fjármálagerninga“, sem um getur í 3. og 6. lið þáttar A í I. viðauka tilskipunar 2004/39/EB skal skilja sem tilvísanir til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Viðskipti skv. a-, b- og c-liðum fimmtu undirgreinar 4. mgr. 2. gr. MiFID II: Tilvísanir í reglum þessum til viðskipta sem um getur í a-, b- og c-liðum fimmtu undirgreinar 4. mgr. 2. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem viðskipti:
- Innan samstæðu eins og fjallað er um í 3. gr. reglugerðar ESB nr. 648/2012, sbr. lög nr. 15/2018 um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, sem þjóna þeim tilgangi að veita samstæðunni lausafé eða vegna áhættustýringar.
- Með afleiður sem er unnt að mæla á hlutlægan hátt að dragi úr áhættu sem tengist beint viðskiptastarfsemi eða fjármögnun.
- Með hrávöruafleiður og losunarheimildir sem framkvæmd eru til að uppfylla skuldbindingar um að mynda seljanleika á viðskiptavettvangi þegar eftirlitsyfirvöld, eða viðskiptavettvangur, krefjast slíkra skuldbindinga í samræmi við landslög.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB):
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2022 frá 14. júlí 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 600/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um skráningarupplýsingar fyrirtækja í þriðja landi og framsetningu á upplýsingum sem veita skal viðskiptavinum, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 24. mars 2022, bls. 1-3, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 29. mars 2019 bls. 7-19, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
- Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 214-221 og 261-272, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 88 frá 31. október 2019 bls. 7-19, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1943 frá 14. júlí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um upplýsingar og kröfur fyrir starfsleyfi verðbréfafyrirtækja.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1945 frá 19. júní 2017 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar tilkynningar frá verðbréfafyrirtækjum, sem hafa sótt um eða hlotið starfsleyfi samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB, eða til slíkra fyrirtækja.
- Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 11. nóvember 2021, bls. 216-247 og 261-272, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 88 frá 31. október 2019 bls. 7-19, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/589 frá 19. júlí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina skipulagskröfur verðbréfafyrirtækja sem leggja stund á viðskipti með notkun algríms.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1946 frá 11. júlí 2017 um viðbætur við tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB og 2014/65/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tæmandi lista yfir upplýsingar sem fyrirhugaðir eigendur láta fylgja með í tilkynningu um fyrirhuguð kaup á virkum eignarhlut í verðbréfafyrirtæki.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/981 frá 7. júní 2017 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar stöðluð eyðublöð, snið og verklagsreglur fyrir samráð við önnur lögbær yfirvöld áður en starfsleyfi er veitt í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 24. mars 2022, bls. 21-28, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 88 frá 31. október 2019 bls. 7-19, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1833 frá 14. júlí 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB til að tilgreina viðmið um það hvenær starfsemi telst vera viðbót við aðalstarfsemi á samstæðustigi, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 37-46, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 35 frá 4. maí 2023 bls. 11, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 2. gr., 4. mgr. 7. gr., 7. mgr. 12. gr., 8. mgr. 25. gr., 6. mgr. 27. gr., 4. mgr. 140. gr. og 35. tölulið 2. mgr. 145. gr. laga nr. 115/2021 um markaði með fjármálagerninga, taka gildi þegar í stað. Á sama tíma falla úr gildi reglur nr. 853/2022 um skipulagskröfur verðbréfafyrirtækja, upplýsingagjöf vegna virks eignarhlutar og viðmið vegna viðbótarstarfsemi.
Seðlabanka Íslands, 8. september 2023.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
|