Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 898/2017

Nr. 898/2017 23. október 2017

REGLUGERÐ
um úthlutun á opnum tollkvótum á svínakjöti.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á svínakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Verðtollur Magntollur
      % kr./kg
Tollskrárnr.: Svínakjöt, fryst:      
0203.2901 Hryggir og hryggsneiðar 24.10.-28.11.17 0 281
0203.2905 Hryggvöðvar 24.10.-28.11.17 0 498
0203.2906 Vöðvar af læri 24.10.-28.11.17 0 352

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 28. nóvember 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Eggert Ólafsson.

Birgitta Kristjánsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. október 2017