Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1587/2022

Nr. 1587/2022 22. desember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um verðbréfaréttindi, nr. 1125/2021.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna „tveggja klukkustunda á ári og samtals sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili og skulu að lágmarki fjórar klukkustundir vera staðfestanlegar“ í 1. málsl. kemur: sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili sem skulu vera staðfestar.
  2. Við 2. málsl. bætist: og skal að lágmarki tveimur klukkustundum varið í endurmenntun um lög og reglur á fjármálamarkaði, sbr. 1. tölul. 2. mgr. sömu greinar.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 41. gr. laga um markaði fyrir fjármála­gerninga, nr. 115/2021, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2022.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2022