Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 310/2023

Nr. 310/2023 14. mars 2023

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald á Suðurnesjum.

1. gr.

Árgjald fyrir að halda hund, sbr. staflið b í 1. mgr. 2. gr. samþykktar nr. 428/1987 um hundahald í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Miðneshreppi, Gerðahreppi, Vatnsleysustrandarhreppi og Hafna­hreppi, með síðari breytingum, skal vera kr. 21.593.

 

2. gr.

Allur kostnaður vegna föngunar hunds sem tekinn er laus, svo sem útkallskostnaður, bifreiða­kostnaður og búrleiga, skal greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfis­lausan hund að ræða.

 

3. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórnum Reykjanesbæjar, Grindavíkur­bæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga, með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustu­hætti og mengunarvarnir, ásamt síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjald­skrá nr. 457/2022 fyrir hundahald á Suðurnesjum.

 

F.h. sveitarfélaga á Suðurnesjum, 14. mars 2023,

 

Magnús Hinrik Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.


B deild - Útgáfud.: 28. mars 2023