Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1120/2013

Nr. 1120/2013 2. desember 2013
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Flúða.

1. Almennt.

Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða.

Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðisaukaskattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.

2. Varmaorka.

2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti.

Fast gjald á mæli

 

Kr./dag

Mælastærð DN 15

 

42,07

Mælastærð DN 20

 

51,71

Mælastærð DN 25

 

67,60

Mælastærð DN 32

 

85,32

101,43

Mælastærð DN 40

 

Mælastærð DN 50

 

169,88

Fasta gjaldinu er dreift niður á tímabil reikninga.

2.2 Rúmmetragjald.

Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða lækkun á hita vatnsins.

H 1. Almenn heitavatnsnotkun.

Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

 

Sala um mæli

Kr./m³

 

Rúmmetragjald skv. mælingu

76,00

H 2. Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað.

 

Atvinnufyrirtæki til framleiðslu

60,44

H 3. Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir.

 

Garðyrkja

27,30

H 4. Heimæðagjöld.

Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar.

Heimæðagjöld - almenn

 

Kr.

Málstærð DN 20 mm

 

219.674

Málstærð DN 25 mm

 

270.539

Málstærð DN 32 mm

 

406.274

Málstærð DN 40 mm

 

811.107

Málstærð DN 50 mm

 

1.346.905

Heimæðagjöld fyrir stærri inntök en 50 mm skal reikna sérstaklega.

Gjald fyrir hvern lengdarmetra í heimæð, umfram 25 m er 1% af heimæðagjaldi.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

Heimæðagjöld - sumarhús

Kr.

20 mm

531.402

25 mm

950.851

Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

3. Önnur gjöld og ákvæði.

 

Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda

2.071 kr.

 

Lokunargjald

4.026 kr.

Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun.

Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði, skulu greiða fast gjald sem hér segir:

 

Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði

28,12 kr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var í veitustjórn þann 28. október 2013 og síðan af hreppsnefnd Hrunamannahrepps 7. nóvember 2013 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1118 frá 28. nóvember 2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. desember 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 17. desember 2013