Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 506/2018

Nr. 506/2018 27. apríl 2018

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 26. og 27. tölul., sem verða svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1473 frá 14. ágúst 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44/2018, frá 23. mars 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 19. apríl 2018, bls. 215.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1862 frá 16. október 2017 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglu­gerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 45/2018, frá 23. mars 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 19. apríl 2018, bls. 216.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbún­aðar­framleiðslu.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbún­aðar­framleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. apríl 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2018