Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2022, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr.:
- Í stað orðanna „óháð kynþætti og þjóðernisuppruna“ í c-lið 4. tölul. kemur: utan vinnumarkaðar.
- Í stað orðanna „Almannavarna- og öryggismálaráð“ í b-lið 7. tölul. kemur: Almannavarnaráð.
- Við 7. tölul. bætist nýr stafliður sem orðast svo: Heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa.
2. gr.
Á eftir a-lið 30. tölul. 2. gr. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Landskjörstjórn.
3. gr.
Á eftir y-lið 4. tölul. 3. gr. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Sorgarleyfi.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:
- Á eftir k-lið 2. tölul. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.
- Á eftir f-lið 8. tölul. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði.
- E-liður 9. tölul. fellur brott.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:
- Á eftir 6. tölul. kemur nýr töluliður sem orðast svo: Endurnot opinberra upplýsinga.
- Á eftir 7. tölul., sem verður 8. tölul., kemur nýr töluliður sem orðast svo: Viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr.:
- Á eftir orðinu „Lyf“ í a-lið 4. tölul. kemur: þ.m.t. dýralyf.
- Á undan orðinu „Rafrettur“ í g-lið 5. tölul. kemur: Nikótínvörur.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr.:
- Á eftir m-lið 2. tölul. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Áhafnir skipa.
- Q-liður 2. tölul. fellur brott.
- Á eftir m-lið 5. tölul. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Fasteignaskrá og fasteignamat.
- Á eftir q-lið 5. tölul., sem verður r-liður, kemur nýr stafliður sem orðast svo: Yfirfasteignamatsnefnd.
- Orðin „fasteignaskrá og fasteignamat“ í 7. tölul. falla brott.
- B-liður 7. tölul. fellur brott.
8. gr.
O-liður 2. tölul. 8. gr. fellur brott.
9. gr.
Q-liður 2. tölul. 10. gr. fellur brott.
10. gr.
Í stað tilvísunarinnar „1. og 5. mgr. 78. gr.“ í r-lið 2. tölul. 12. gr. kemur: 112. gr.
11. gr.
Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 24. janúar 2023.
Guðni Th. Jóhannesson. (L. S.)
|