Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 261/2023

Nr. 261/2023 8. mars 2023

REGLUGERÐ
um (13.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 58.-60. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2487 frá 16. desember 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/139 frá 18. janúar 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/268 frá 8. febrúar 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir (ESB) 2022/2487, (ESB) 2023/139 og (ESB) 2023/268 eru birtar á ensku í C-deild Stjórnar­tíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 6/2023.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 8. mars 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. mars 2023