Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 206/2020

Nr. 206/2020 11. mars 2020

AUGLÝSING
(II) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 676/2019 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélagi:

Sveitarfélagið Ölfus.

Ákvæði reglugerðar nr. 676/2019 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftir­farandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fisk­veiði­árs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðu­neytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggðakvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðar­innar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

 

2. gr.

Ákvæði auglýsingarinnar munu ekki leiða til skerðingar á úthlutunum sem Fiskistofa hefur þegar tekið ákvörðun um og verið tilkynnt til viðkomandi aðila.

 

3. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. mars 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 12. mars 2020