1. gr.
2. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:
Stofn til álagningar vatnsgjalds.
Stofn til álagningar vatnsgjalds skal vera 0,1% af fasteignamati íbúðarhúsa og -lóða, 0,30% af fasteignamati annars húsnæðis og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum.
2. gr.
4. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:
Aukavatnsgjald.
Auk vatnsgjalds skulu fyrirtæki og aðrir sem nota vatn til annars en heimilisþarfa greiða aukavatnsgjald sem hér segir:
Aukavatnsgjald – mánaðarnotkun.
Rúmmetrafjöldi Gjald pr. m3 Skýring
0 - 12.500 m3
|
48,0 kr. m3
|
grunngjald
|
12.501 – 20.840 m3
|
38,4 kr. m3
|
(20% afsláttur af grunngjaldi)
|
20.841 – 29.200 m3
|
33,6 kr. m3
|
(30% afsláttur af grunngjaldi)
|
29.201 – 37.500 m3
|
28,8 kr. m3
|
(40% afsláttur af grunngjaldi)
|
37.501 – 45.840 m3
|
24,0 kr. m3
|
(50% afsláttur af grunngjaldi)
|
45.841 – og fleiri m3
|
19,2 kr. m3
|
(60% afsláttur af grunngjaldi)
|
3. gr.
Breytingar þessar voru samþykktar af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 6. og 20. maí 2021 með tilvísun til heimildar 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga og öðlast þegar gildi.
Ísafjarðarbæ, 20. maí 2021.
Birgir Gunnarsson bæjarstjóri.
|