1. gr.
Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum.
Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum eru eftirfarandi:
- 370 krónur á gjaldsvæði 1.
- 190 krónur á gjaldsvæði 2.
- 190 krónur á klukkustund fyrir fyrstu 2 klukkustundirnar og 55 krónur á klukkustund eftir það á gjaldsvæði 3.
- 190 krónur á gjaldsvæði 4.
2. gr.
Gjald fyrir bílastæðakort íbúa í Reykjavík.
Gjald fyrir bílastæðakort íbúa er eftirfarandi:
- 1.250 kr. á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.
- 2.500 kr. á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.
3. gr.
Gildistaka og lagastoð.
Gjaldskrá þessi sem sett er með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, var samþykkt á fundi skipulags- og samgönguráðs 7. júlí 2021 og á fundi borgarráðs 12. ágúst 2021 og tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Á sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1375/2019.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. ágúst 2021.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir e.u.
|