Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1195/2020

Nr. 1195/2020 26. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 1. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  ú. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/111 frá 13. janúar 2020 um breyt­ingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar samþykki fyrir flug­verndar­búnaði í almenningsflugi sem og fyrir þriðju lönd sem viðurkennt er að beiti flug­verndarkröfum sem jafngilda sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almennings­flugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138 frá 25. september 2020, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 610.

Liðir (1) (b) og (2) (b) að því er varðar Ísrael, Ben Gurion flugvöll, koma ekki til framkvæmda.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Á sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 114/2020 og nr. 279/2020 um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. nóvember 2020.

 

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2020