Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 845/2017

Nr. 845/2017 11. september 2017

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þving­unar­aðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum:

  1.10 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/350 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, fylgiskjal 1.10.
  2.17 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/331 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, fylgiskjal 2.17.

Eftirfarandi töluliðir í sömu málsgrein skulu falla niður: 1.1-1.8 og 2.7-2.14.

Í stað 2.-4. mgr. 2. gr. kemur:

Viðaukar við reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús (fylgiskjal 2) eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg/2006/765/oj.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framan­greindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef Stjórnartíðinda Evrópu­sambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. októ­ber 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar „Skrá yfir varnartengdar vörur“. Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðar­lega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­fest­ingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og fryst­ingu fjármuna.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 4. október 2017